Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 241 – 172. mál.



Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um lánastefnu Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver er afstaða ráðherra til þeirrar lánastefnu Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að setja pólitísk skilyrði um markaðs- og einkavæðingu fyrir lánveitingum?

    Fyrst skal á það bent að viðskiptaráðuneytið hefur málefni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með höndum, en ekki utanríkisráðuneytið. Eftirfarandi svar mun því einungis beinast að starfs háttum og reglum Alþjóðabankans um lánveitingar.
    Í stofnsamþykkt Alþjóðabankans segir m.a. að markmið hans sé að stuðla að bættri nýt ingu framleiðsluþátta og auðlinda þróunarríkjanna, auk þess að efla alþjóðleg viðskipti og styðja aukna fjárfestingu erlendra einkafjárfesta í þróunarlöndum. Jafnframt segir að bank inn skuli tryggja að veittum lánum verði eingöngu varið í því skyni sem til var stofnað. Taka ber tillit til efnahags- og viðskiptalegra þátta en ekki til pólitískra sjónarmiða eða annarra áhrifa sem ekki eru efnahagslegs eðlis. Telja verður að Alþjóðabankinn starfi innan þess ramma sem honum var settur í upphafi.
    Alþjóðabankinn hefur alla tíð starfað á þeim grunni að markmiðum hans verði best náð með frjálsræði í viðskiptum og virkum markaði. Þannig megi auka alþjóðleg viðskipti, fram leiðni fyrirtækja og erlenda fjárfestingu. Áratuga hagrannsóknir bankans hafa auk þess sýnt að frjáls markaðsbúskapur í stað miðstýringar er besta leiðin til að örva hagvöxt. Megin stefna bankans telst vænleg leið til að bæta lífskjör íbúa þróunarríkjanna.
    Mikilvægur þáttur í starfi Alþjóðabankans er að veita tækniaðstoð jafnhliða lánveitingum. Slík aðstoð er unnin samkvæmt forskrift sem bankinn og viðkomandi lántakandi hafa unnið í sameiningu. Á síðustu árum hefur tækniaðstoð bankans beinst í æ ríkari mæli að bættri hag stjórn lántökulanda. Slíkar áherslur hafa m.a. beinst að niðurfellingu innflutningshafta, ein földun útflutnings- og gjaldeyrisviðskipta, endurskipulagningu opinberra stofnana og einka væðingu opinberra fyrirtækja.
    Bankinn hefur á síðustu árum veitt lán háð skilyrðum um bætta hagstjórn. Í slíkum tilfell um eru skilyrði ákvörðuð í náinni samvinnu við lántökuland. Slík lán námu á síðasta fjár hagsári 5,1 milljarði Bandaríkjadala, eða 26,5% af heildarútlánum bankans.
    Álíta verður að áherslur Alþjóðabankans og lántökulanda um bætta hagstjórn séu af hinu góða og hafi jákvæð áhrif á efnahagsumhverfi þeirra landa er í hlut eiga. Í því sambandi má nefna rannsókn á efnhagsárangri 29 Afríkuríkja sunnan Sahara í lok níunda áratugarins og upphafi þess tíunda. Sú rannsókn leiddi í ljós greinilegan mun milli þeirra ríkja er gert höfðu umfangsmiklar úrbætur á sviði verslunar, viðskipta og fjármála og hinna er engu höfðu breytt. Til dæmis höfðu lönd í fyrrnefnda hópnum að meðaltali aukið útflutning sinn um 8% árlega á meðan útflutningur landa í síðarnefnda hópnum dróst saman. Eins hafði iðnfram leiðsla fyrrnefnda hópsins aukist þrefalt á við þann síðarnefnda.
    Telja verður að markmiðum Alþjóðabankans verði best náð með frjálsum markaðsbúskap og að styðja beri áframhaldandi áherslu á uppbyggingu einkageirans í þróunarlöndunum. Þessi afstaða kom skýrt fram í sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna á aðalfundi Alþjóðabankans í september sl. þar sem m.a. var lögð áhersla á bætt rekstrarumhverfi einka fyrirtækja. Þar var jafnframt nefnt að forsenda fyrir efnahags- og félagslegri þróun felist m.a. í endurbótum á sviði mennta- og heilbrigðismála, aukinni skilvirkni opinberra stofnana og minnkandi beinni þátttöku ríkisvaldsins í viðskiptalífinu.