Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 247 – 113. mál.



Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Kristínar Halldórsdóttur, Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfun óskiptra liða á fjárlögum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur verið varið fjárframlagi af óskiptum lið 01-190 190 Ýmis verkefni að fjárhæð 7,3 millj. kr. á fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?

    Á framangreindan fjárlagalið er færður kostnaður vegna tiltekinna verkefna sem forsætis ráðuneytið hefur með höndum og eru þau breytileg eftir árum. Á þessu ári hefur verið gjaldfært á umræddan fjárlagalið reglubundið framlag til Þróunarfélags Reykjavíkur að fjárhæð 1,3 millj. kr. og kostnaður við eftirtaldar nefndir sem starfa eða hafa starfað á vegum ráðuneytisins: Stjórnarfarsnefnd (1,4 millj. kr.), fánanefnd (450 þús. kr.), nefnd um endur skoðun laga um Stjórnarráð Íslands (1,2 millj. kr.) og nefnd um þjóðlendur (70 þús. kr.). Þá er á þessum lið einnig gjaldfærður kostnaður við ráðstefnuhald í tilefni af afmæli leiðtoga fundarins í Reykjavík (800 þús. kr.) og vegna ritaraþjónustu við fyrrverandi forseta Íslands (200 þús. kr.), auk annarra smávægilegri útgjalda.