Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 248 – 112. mál.



Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Kristínar Halldórsdóttur, Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar og Sigríðar Jóhannesdóttur um rekstrarhagræðingu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur verið varið framlögum til rekstrarhagræðingar á eftirtöldum liðum á fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum:
     a.      2 millj. kr. á liðnum 00-950,
     b.      1 millj. kr. á liðnum 01-950,
     c.      1 millj. kr. á liðnum 13-950?


    Ekki liggur fyrir ákvörðun um ráðstöfun 2 millj. kr. á fjárlagalið 00-950.
    Ekki liggur fyrir endanleg ákvörðun um ráðstöfun 1 millj. kr. á fjárlagalið 01-950. For sætisráðuneytið gerir ráð fyrir að fjárveitingunni verði ráðstafað til embættis umboðsmanns barna vegna flutnings embættisins í nýtt skrifstofuhúsnæði.
    Ekki liggur fyrir ákvörðun um ráðstöfun 1 millj. kr. framlags til rekstrarhagræðingar hjá Hagstofu Íslands.