Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 249 – 139. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar, Kristínar Halldórsdóttur og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið varið 8 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 06-199 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?
Af ráðstöfunarfé ráðherra hefur verið varið samtals 625.000 kr. sem skiptast þannig:
Verkefni
Kr.
Úlfljótur, tímarit laganema
Styrkur vegna hátíðarútgáfu 100.000
Kvenréttindafélag Íslands
Úttekt á kosningakerfum o.fl. í fimm Evrópulöndum með tilliti til
þátttöku kvenna í stjórnmálum 300.000
Club Lögberg
Vegna þátttöku laganema í norrænni málflutningskeppni 100.000
Æskulýðssamband Íslands
Fræðslu- og skemmtisíðdegi um ungt fólk og ofbeldi 50.000
Skálholtsskóli
Höggmyndasýning í tilefni af þúsund ára afmæli kristnitöku á Íslandi 75.000