Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 252 – 141. mál.



Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Kristínar Halldórsdóttur, Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur verið varið 3 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 05-199 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?

    Á síðasta ári nýtti sjávarútvegsráðherra 1,4 millj. kr. af ráðstöfunarfé sínu. Þær 1,6 millj. kr. sem eftir voru af ráðstöfunarfé hans hafa í ríkisbókhaldi verið fluttar yfir á þetta ár. Ráð herra hefur því 4,6 millj. kr. til ráðstöfunar.
    Ráðherra hefur veitt tveimur ungum hafvísindamönnum styrki til framhaldsnáms, að fjár hæð 750.000 og 250.000 kr. Styrkveiting þessi var auglýst og bárust átta umsóknir, en tvær reyndust utan þess ramma sem styrkjunum var settur. Af hinum umsækjendunum sex eru fjórir í meistaranámi og tveir í doktorsnámi. Við úthlutun var horft til framvindu náms og náms árangurs og hversu mikilvægt rannsóknarsvið viðkomandi nemanda væri fyrir íslenskar haf- og fiskirannsóknir. Styrkþegarnir eru Hreiðar Þ. Valtýsson, meistaranámsnemi við háskólann í Bresku Kólumbíu í Kanada, en hann rannsakar vöxt og dánarhlutfall karfa, og Albert K. Imsland, sem er í doktorsnámi í Björgvin í Noregi og rannsakar áhrif umhverfis og erfðaþátta á vöxt flatfiska í eldi.
    Auk framangreinds hefur ráðherra veitt 150.000 kr. í minningarsjóð um Ólaf V. Einarsson sem lést í sumar, en hann var fiskifræðingur og hafði m.a. starfað hjá Hafrannsóknastofnun inni og Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Namibíu. Hann var mjög virtur fyrir störf sín í Namibíu eins og kom berlega í ljós í heimsókn ráðherra þangað fyrir skömmu.