Ferill 234. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 267 – 234. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skilyrði til lokunar vínveitingastaða.
Frá Svavari Gestssyni.
1. Hve oft hefur lögreglan fellt niður vínveitingaleyfi, sbr. 4. mgr. 12. gr. áfengislaga, nr. 82/1969?
2. Hvenær er gert ráð fyrir að endurskoðun áfengislaga ljúki, m.a. með tilliti til útgáfu vínveitingaleyfa á veitingahúsum og til þess að lögreglan geti sett strangari skilyrði fyrir opnun veitingastaða sem hafa brotið settar reglur?