Ferill 134. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 282 – 134. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigríðar Jóhannesdóttur, Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar og Kristínar Halldórsdóttur um rekstrarhagræðingu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið varið 45 millj. kr. framlagi til rekstrarhagræðingar á lið 08-950 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?
Á rekstrarhagræðingarlið heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis eru í fjárlögum 1997 ætlaðar 45 m.kr. Til ráðstöfunar á árinu verða hins vegar 111.598 m.kr. sbr. eftirfarandi:
| Þús. kr. | |
|
Fjárlög 1997
|
45.000 |
|
Flutt fjárveiting frá 1996
|
4.798 |
|
Hagræðing í rekstri landsbyggðarsjúkrahúsa
|
31.800 |
|
Fjáraukalög 1997*
|
30.000 |
|
Samtals
|
111.598 |
| * Upphaflega var áformað að spara 60 m.kr. í rekstri landsbyggðarsjúkrahúsa á árinu 1997. |
|
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur þegar ráðstafað fé af rekstrarhagræðingarlið heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis til eftirfarandi verkefna á árinu 1997:
1.
Tryggingastofnun ríkisins
5.000 þús. kr.
Átaksverkefni við gerð lyfjalista og gæðastýringu á lyfjaávísunum lækna með það að markmiði að lækka lyfjakostnað almannatrygginga og almennings. Í fjárlögum 1997 er áformaður 400 m.kr. sparnaður í lyfjakostnaði sjúkratrygginga og 300 m.kr. sparnaður á árinu 1998 samkvæmt fjárlagafrumvarpi þess árs.
2.
Tryggingastofnun ríkisins
6.000 þús. kr.
Framlag til að koma tölvumálum tannlæknadeildar Tryggingastofnunar ríkisins í nútímahorf. Að áliti stofnunarinnar má ná fram umtalsverðum sparnaði með tölvuvæðingu tannlæknadeildarinnar þar sem með nýju tölvukerfi megi gjörbreyta vinnubrögðum í tannmálum, efla forvarnir og tryggja betur að vel sé farið með þá fjármuni sem til þessa málaflokks er varið. Á árinu 1998 er áformað að lækka útgjöld til tannlækninga um 70 m.kr. og er tölvuvæðing tannalæknadeildarinnar ein af forsendum þess að þau áform gangi eftir.
3.
Sjúkrahús Reykjavíkur
12.700 þús. kr.
Á síðasta ári voru gerðir starfslokasamningar við ýmsa starfsmenn Sjúkrahúss Reykjavíkur í tenglsum við sameiningu nokkurra deilda. Á árinu 1997 eru útgjöld vegna þess
4.
Ríkisspítalar
30.000 þús. kr.
Rekstur lýtalækningadeildar Ríkisspítala frá og með 1. apríl 1997. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1998 er gert ráð fyrir heilsársrekstri deildarinnar. Með opnun lýtalækn
5.
Reynslusveitarfélagið Akureyri
12.477 þús. kr.
Hér er annars vegar um að ræða 5.000 þús. kr. eingreiðslu vegna fjárfestingar í síma- og upplýsingakerfi, þróun gæðastjórnunar og tölvutengingar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, ásamt kostnaði við eflingu heimaþjónustu. Hins vegar er um að ræða mismun á greiðslu fyrir 120 dvalarrými samkvæmt reynslusveitarfélagssamningi og greiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, lífeyristryggingadeildar fyrir 113 áætluð nýtt dvalarrými, en lífeyristryggingadeildin getur eingöngu greitt fyrir nýtt rými, þ.e. greitt er fyrir einstaklinga en ekki tiltekinn fjölda rúma.
6.
Reynslusveitarfélagið Höfn
1.206 þús. kr.
Kostnaður vegna tilraunaverkefnisins „Reynslusveitarfélagið Höfn“. Um er að ræða kostnað við skrifstofuhald, launaútreikninga o.fl.
7.
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
10.000 þús. kr.
Á þessu ári verða sameinaðar sex heilbrigðisstofnanir á Vestfjörðum í eina stofnun, Heilbrigðisstofnunina Ísafjarðarbæ. Stofnanirnar eru Fjórðungssjúkrahúsið Ísafirði, Sjúkraskýlið Þingeyri, Öldrunarstofnun Önfirðinga, Flateyri, Heilsugæslustöðin Ísafirði (þar með taldar H-stöðvar í Súðavík og á Suðureyri), Heilsugæslustöðin Þingeyri og Heilsugæslustöðin Flateyri. Við það er miðað að hinni sameinuðu stofnun takist að halda rekstri innan fjárheimilda, en svo hefur ekki verið hvað einstakar stofnanir varðar. Þá hefur til viðbótar verið gerð sérstök hagræðingarkrafa til Fjórðungssjúkrahússins Ísafirði á þessu og næsta ári upp á samtals 7,5 m.kr. Að tillögu sérstaks starfshóps sem fjallaði um sameiningu heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum hefur verið ákveðið að koma til móts við hina sameinuðu stofnun hvað uppsafnaðan eldri rekstrarhalla varðar.
8.
Skipulagsathugun sjúkrahúsanna
13.500 þús. kr.
Í desember 1996 var undirritaður ráðgjafasamningur milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar ehf. um skipulagsathugun sjúkrahúsanna. Tveimur fyrstu hlutum þeirrar athugunar, þ.e. forathugun og valkostum miðað við núverandi stöðu, er nú lokið og er kostnaður ráðuneytisins vegna þeirra 13.500 þús. kr. Þar af er kostnaður við prentun og kynningu skýrslunnar 2 m.kr.
9.
Hagsýsla ríkisins
1.300 þús. kr.
Á þessu ári hefur Hagsýsla ríkisins unnið tvær skýrslur fyrir ráðuneytið, annars vegar „Tannlækningar, skipulag og stjórnsýsla“ og hins vegar „Sameining heilbrigðisstofnana á norðanverðum Vestfjörðum“. Skýrslugerð þessi er liður í hagræðingarvinnu ráðuneyt
Samtals hefur tæpum 92,2 m.kr. verið ráðstafað af rekstrarhagræðingarlið ráðuneytisins. Til viðbótar munu falla á þenna lið fjárlaga kostnaður við aðkeypta vinnu ráðuneytisins í tengslum við ýmis hagræðingarverkefni. Til að mynda er í gangi vinna við gerð kröfulýsinga, annars vegar í tengslum við fjármögnun og rekstur sjúkrabifreiða og hins vegar rekstur læknavaktar á höfuðborgarsvæðinu. Þá voru ráðnir tímbundið tveir starfsmenn vegna vinnu við hagræðingu í rekstri landsbyggðarsjúkrahúsa og verður kostnaður við þá vinnu greiddur af rekstrarhagræðingarlið ráðuneytisins. Samtals má gera ráð fyrir að kostnaður vegna þess