Ferill 135. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 283 – 135. mál.



Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigríðar Jóhannesdóttur, Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar og Kristínar Halldórsdóttur um ráðstöfun óskiptra liða á fjárlögum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur verið varið eftirtöldum fjárframlögum á óskiptum liðum á fjárlögum 1997:
     a.      1,5 millj. kr. á liðnum 08-340 190 Ýmis starfsemi,
     b.      3,6 millj. kr. á liðnum 08-399 190 Ýmis starfsemi,
     c.      31,9 millj. kr. á liðnum 08-621 190 Forvarnasjóður?

     a.
     Styrkir á fjárlagalið 08-340 190 árið 1997.
Kr.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
    Til sundkennslu og æfinga í nýrri sundlaug          100.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu
    Ferðastyrkur fyrir hjálparmenn fatlaðra          100.000
    Þátttaka í skákmóti á vegum IPCA          70.000
Íþróttasamband fatlaðra
    Styrktarlína í HVATA, blaði sambandsins          30.000
Gigtarfélag Íslands
    Styrkur til fræðslu og forvarnastarfsemi          1.000.000
Geðhjálp
    Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur 10. október          250.000
Samtals           1.550.000

     b.
     Styrkir á fjárlagalið 08-399 190 árið 1997.
Kr.

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
    Framlag samkvæmt fjárlaganefnd          300.000
Umhyggja
    Styrkur til að senda fulltrúa á Evrópuþing EACH          100.000
Jafnréttisráð
    Styrkur vegna stofnunar meðferðarþjónustu          500.000
Samtök áhugafólks um flogaveiki
    Styrkur vegna sálfræðiaðstoðar við flogaveika          200.000
Landssamtök hjartasjúklinga
    Hjartagangan 1997          15.000
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
    Styrkur vegna athugunar á ofbeldi starfsfólks á heilbrigðisstofnunum,
     úthlutað 1996          100.000
    Styrkur til útgáfu handbókar hjúkrunarfræðinga          40.000
Íþróttasamband Íslands
    Seinni útgáfa á þvaglekabæklingi          100.000
NOBAB Nytt
    Styrkur til útgáfu blaðs NOBAB          50.000
Ljóstæknifélag Íslands
    Styrkur til sýningar sem er send um landið          50.000
Athugun á heilsugæslustöðvum
    Styrkur til rannsóknar á þörf fyrir sálfræðiþjónustu í heilsugæslunni          150.000
Gæðastjórnunarfélag Íslands
    Styrkur til málþings um starfsmannstjórnun/mannauðinn          100.000
Blindrafélagið
    Styrkur til að senda fulltrúa á endurmenntunarnámskeið erlendis          50.000
Stígamót
    Styrkur til að endurprenta bækling um nauðgun          100.000
Foreldrafélag axlarklemmubarna
    Stofnstyrkur          150.000
KBS'97 Íslandsdeild
    Styrkur vegna ráðstefnu „Kettil Bruun Society for Social and
    Epidemiological on Alcohol“          250.000
Félag hjúkrunarnema við HÍ
    Styrkur til útgáfu blaðs félagsins          10.000
Norræn ráðstefna heimilislækna
    Styrkur til kynningar rannsóknar á „vaktþjónustu í heilsugæslunni“          60.000
Æskulýðssamband Íslands
    Styrkur til fræðsludagsins 22. apríl          20.000
Heilsugæslustöðin Kirkjubæjarklaustri
    Viðbótarframlag vegna álags yfir sumarmánuðina          300.000
Parkinsonsamtökin á Íslandi
    Styrkur til útgáfu bókar fyrir sjúklinga og aðstandendur          100.000
Félag heyrnarlausra
    Styrkur vegna gerðar táknmálsmyndbands          50.000
Iðjuþjálfun/geðdeild Landspítala
    Styrkur til að senda fulltrúa á ráðstefnu „Fountain House“ í Gautaborg          100.000
Félagsráðgjafar/geðdeild Landspítala
    Styrkur til að sækja þjálfunarnámskeið í London          178.000
Medic Alert á Íslandi
    Styrkur til verkefnis við símanúmerabreytingar          300.000
Menntaskólinn á Laugarvatni
    Styrkur til fræðslu um heilbrigðismál          50.000
Sjúkrahús Reykjavíkur, slysa- og bráðasvið
    Styrkur til myndbandsgerðar          100.000
Félag íslenskra heimilislækna
    Styrkur vegna vorfundar evrópsku heimilslæknasamtakanna          60.000
Stomasamtökin
    Styrkur vegna ársþings norrænu stomasamtakanna          70.000
Sjúkrahús Reykjavíkur, eitrunarupplýsingamiðstöð
    Styrkur vegna árlegs fundar Sambands norrænna eitrunarupplýsinga-
    miðstöðva          100.000
Sjúkrahús Reykjavíkur, Grensásdeild
    Styrkur vegna norræns mænuskaðaþings á Íslandi          50.000
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
    Gjöf á 40 ára afmæli          275.000
Náttúrufræðistofnun Íslands
    Þátttaka í greiðslu vegna frjómælinga í andrúmslofti          300.000
Orðanefnd læknafélaganna
    Útgáfustyrkur/norræn flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum          75.000
Ms-félag Íslands
    Styrkur til þátttöku í aðlþjóðlegum fundi í Buenos Aires          150.000
Félagið Einstök börn
    Styrkur til útgáfu bæklings          50.000
PKU-félagið
    Styrkur til þátttöku einstaklings í Evrópuþingi          30.000
Landssamband eldri kylfinga
    Styrkur vegna móts          30.000
Örverufræðifélag Íslands
    Styrkur vegna fundar um veirur í matvælum          10.000
Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga
    Styrkur fyrir starfsárið 1997–98          75.000
Samtals           4.798.000

     c.
     Úthlutun styrkja úr Forvarnasjóði af fjárlagalið 08-621 190 árið 1997.
Kr.

Félagsmálaráðuneyti með Reykjavíkurborg
    Átak í vímuvörnum grunnskólanema í Reykjavík          3.500.000
Heilbrigðisráðuneyti með Reykjavíkurborg
    Átak í vímuvörnum grunnskólanema í Reykjavík          1.500.000
ECAD – Ísland án eiturlyfja 2002
    Starfsemi samkvæmt samstarfssamningi          3.000.000
Jafningjafræðsla framhaldsskólanema
    Fræðslustarf meðal nemenda í framhaldsskólum          2.000.000
SÁÁ
    Fræðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum           900.000
    Víðtækt forvarnaverkefni í sveitarfélögum          1.500.000
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum
    Vímuvarnaskólinn, forvarnastarf í grunnskólum          1.000.000
    Verkefni sem miðar að því að breyta viðhorfi til ölvunar          1.000.000
    Til samhæfingar og þróunar í forvarnastarfi          800.000
Barnaheill og Vímulaus æska
    Samstarf um þróun foreldrasímans          1.000.000
Vímulaus æska
    Ráðgjafarþjónusta fyrir foreldra barna í vímuefnavanda          1.000.000
    Námskeiðahald fyrir foreldra og börn alkóhólista          900.000
Heimili og skóli, verkefnið „Súperforeldrarnir“
    Vekja umhugsun almennings og ábyrgð foreldra          1.000.000
Vernd, fangahjálp – samstarfsverkefni
    Aðstoða fanga við að verða vímuefnalausir          800.000
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
    Samstarf um markvisst forvarnastarf í Reykjanesbæ          700.000
Sumarheimili templara
    Árlegt bindindismót um verslunarmannahelgina          500.000
Áfengis- og vímuvarnanefnd Akureyrarbæjar
    „VOFF“ – vímuvarnaverkefni í grunnskólum          440.000
Stórstúka Íslands
    Bindindismót á Norðurlandi um verslunarmannahelgina          500.000
Skógarmenn KFUM
    Fjölskylduhátíð í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina          400.000
Atvinnuskapandi forvörn, barnaleikritið Latibær o.fl.
    Forvarnaverkefni í samstarfi við aðra          500.000
Félag unglækna árið 2000
     Fræðsla fyrir framhaldsskólanema          200.000
Útideild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar
    Forvarnir á sviði afbrota fyrir drengi á aldrinum 14–16 ára          140.000
Landskönnun á notkun tóbaks, áfengis og annarra vímugjafa meðal 15–20
    ára skólanema
    
1.000.000

Söfnun á niðurstöðum rannsókna sem gerðar hafa verið. Gerður saman-
    burður á niðurstöðum og greining á stöðu mála
         800.000
Úthlutun til áfangaheimila          6.250.000
Samtals           31.330.000