Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 284 – 242. mál.



Tillaga til þingsályktunar



um skráningarmerki bifreiða.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Einar K. Guðfinnsson.



    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að breyta núgildandi reglum um eldri skrán ingarmerki bifreiða, þannig að eigendum bifreiða með eldri skráningarmerki verði heimilt að hafa slík merki áfram á bifreiðum sínum.

Greinargerð.


    Reglur um notkun eldri bifreiða er að finna í 34. gr. reglugerðar nr. 78/1997, sem sett er með stoð í umferðarlögum, en þar segir:
    „Ökutæki sem skráð voru fyrir 1. janúar 1989 mega áfram bera skráningarmerki af eldri gerð, enda séu merkin heil og vel læsileg. Bifhjól og eftirvagnar mega þó ekki bera skrán ingarmerki af eldri gerð lengur en til 31. desember 1997 og önnur ökutæki ekki lengur en til 31. desember 1998.“
    Samkvæmt upplýsingum frá Skráningarstofunni hf. frá 27. október 1997 eru nú 44.752 fólksbifreiðar, 427 hópferðabifreiðar og 2.770 vörubifreiðar með skráningarnúmer af eldri gerð eða alls 47.949 ökutæki. Láta mun nærri að kostnaður eigenda framangreindra ökutækja vegna númeraskipta verði um 132 millj. kr. Hér er eingöngu talinn kostnaður vegna númera spjaldanna.
    Álögur á bifreiðaeigendur eru ærnar fyrir og ekki þar á bætandi þegar hafður er í huga sá fjölbreytileiki sem nú viðgengst varðandi skráningarnúmer bifreiða með tilkomu nýrra númeraplatna. Þá er í mörgum tilvikum óþénugt að koma fyrir nýjum tegundum númera platna á eldri fólksbifreiðar. Það vefst heldur ekki fyrir flutningsmönnum að hér er um mikið tilfinningamál að ræða og í bland nokkur fastheldni, sem í þessu tilfelli er engin ástæða til að sporna við.
    Fyrst og fremst hefur þessi þingsályktunartillaga umtalsverðan sparnað í för með sér fyrir bifreiðaeigendur, enda ástæðulaust að sóa fjármunum eins og 34. gr. reglugerðar nr. 78/1997 segir fyrir um.
    Breytingin sem tillagan felur í sér kemur í kjölfar þess að einkamerki bifreiða voru leyfð með breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, sem gerð var með lögum nr. 37/1996.

Fylgiskjal.

Fjöldi ökutækja með númer af gamalli gerð.

(mynd/tafla)