Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 289 – 244. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um gjald af kvikmyndasýningum.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
1. Hvaða sveitarstjórnir leggja sérstakt gjald á kvikmyndasýningar samkvæmt lögum nr. 28/ 1952 og hve lengi hefur það verið gert?
2. Hversu hátt hlutfall af aðgangseyri að kvikmyndasýningum er gjaldið og hve há hefur fjárhæðin verið árlega síðustu fimm ár, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
Skriflegt svar óskast.