Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 304 – 122. mál.



Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Gísla S. Einarssonar, Kristins H. Gunnarssonar, Kristínar Halldórsdóttur og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur verið varið 3 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 12-199 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?

    Ákveðið hefur verið að verja 2,3 millj. kr. til sérstakrar fjárveitingar til verkefna á vegum Neytendasamtakanna. Ekki hefur enn verið ákveðið til hvaða verkefna eftirstöðvunum verður varið.