Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 307 – 125. mál.


Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, Gísla S. Einarssonar, Kristínar Halldórsdóttur og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur verið varið 8 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 11-199 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?

    Ákveðið hefur verið að verja 3,5 millj. kr. til endurnýjunar tækja- og tölvubúnaðar iðnað ar- og viðskiptaráðuneytis og 1 millj. kr. til aukinna útgjalda við undirbúning alþjóðlegs fjár festingarsáttmála MAI (Multilateral Agreement on Investment).
    Ekki hefur enn verið ákveðið til hvaða verkefna eftirstöðvunum verður varið.