Ferill 126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 308 – 126. mál.
Svar
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, Gísla S. Einarssonar, Kristínar Halldórsdóttur og Sigríðar Jóhannesdóttur um rekstrarhagræðingu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið varið 3 millj. kr. framlagi til rekstrarhagræðingar á lið 11-950 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?
Framlagi af fjárlagalið 950 Rekstrarhagræðing er m.a. ætlað að mæta kostnaði af ýmiss konar hagræðingaraðgerðum sem leiða til varanlegrar lækkunar ríkisútgjalda, en þar má nefna vinnu við skipulagsbreytingar, tækjakaup, endurbætur á vinnustað og hugsanlegar bið
Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um til hvaða verkefna fjárveitingu þessari verður varið, en ráðuneytið mun gera fjárlaganefnd Alþingis grein fyrir ráðstöfun fjárveitingarinnar þegar þar að kemur, í samræmi við reglur sem settar hafa verið þar um.