Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 320 – 260. mál.
                        


Tillaga til þingsályktunar



um miðstöð háskóla- og endurmenntunar á Austurlandi.

Flm.: Hjörleifur Guttormsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Jón Kristjánsson.



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að stuðla að því í samvinnu við háskólanefnd Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi og Atvinnuþróunarfélag Austurlands að hið fyrsta verði komið á fót miðstöð háskólastigs og endurmenntunar í Austurlandskjördæmi.
    Verkefni miðstöðvarinnar verði fyrstu árin að auðvelda og þróa tengsl nemenda fram­haldsskóla, almennings og atvinnulífs á Austurlandi við skóla og nám á háskólastigi og tengja saman aðila sem sinna endurmenntun og símenntun á Austurlandi.

Greinargerð.


Miðstöð háskólastigs og endurmenntunar.
    Austfirðingar hafa hingað til að mestu verið afskiptir þegar um nám á háskólastigi er að ræða. Vissar tilraunir voru þó gerðar á síðasta áratug til að ná tengslum við þetta skólastig og hugmyndir hafa á síðustu árum komið fram um háskólanám í fjórðungnum eins og síðar er rakið. Á haustþingi Alþingis 1996 (121. löggjafarþingi) fluttu sömu flutningsmenn tillögu til þingsályktunar „um upplýsinga- og fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austurlandi“ (192. mál). Fól hún í sér að hið fyrsta yrði af hálfu yfirstjórnar menntamála ráðist í markvissar aðgerðir til að tengja Austurland við háskólastigið og leggja með því grunn að því sem síðar gæti orðið háskóli innan fjórðungsins. Menntamálanefnd Alþingis fjallaði um tillöguna og fékk jákvæðar umsagnir frá ýmsum aðilum (sjá fylgiskjal II). Tillagan var ekki afgreidd frá nefndinni. Hún er nú endurflutt af sömu flutningsmönnum nokkuð breytt í ljósi umfjöllunar sem málið hefur fengið heima fyrir og á Alþingi.
    Að mati flutningsmanna eru ekki raunhæfar forsendur í bráð til þess að efna til sjálfstæðs háskóla á Austurlandi og önnur tilhögun er vænlegri til að Austfirðingar fái með skjótum hætti greiðari aðgang og betri tengsl við háskólastigið en nú er. Lagt er til að Alþingi feli menntamálaráðherra að stuðla að því í samvinnu við háskólanefnd Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi (SSA) og Atvinnuþróunarfélag Austurlands að hið fyrsta verði komið á fót miðstöð háskólastigs og endurmenntunar í fjórðungnum. Verkefnasvið þessarar mið­stöðvar verði fyrst í stað einkum tvíþætt eins og fram kemur í nafngiftinni miðstöð háskóla­stigs og endurmenntunar, þ.e.:
–      að þróa víðtæk tengsl við skóla og nám á háskólastigi annars staðar á landinu og miðla þeim tengslum til nemenda framhaldsskóla, almennings og atvinnulífs á Austurlandi.
–      að stuðla að endurmenntun og námi á þessu skólastigi á Austurlandi, m.a. í formi námskeiða og fjarkennslu.
    Endurmenntun, símenntun og fjarkennsla í samstarfi við þá háskóla sem fyrir eru gætu orðið meðal helstu verkefna miðstöðvarinnar og tengst framhaldsskólum, fyrirtækjum og starfsgreinafélögum innan fjórðungsins.
    Líklegt er einnig að fljótlega verði hægt að byggja upp stuttar háskólabrautir í tengslum við starfandi framhaldsskóla á Austurlandi. Horfur eru á að framhaldsskólanám til stúdentspróf styttist innan tíðar úr fjórum árum í þrjú, og mætti hugsa sér að í stað fjórða árs fram­haldsskóla komi nám á háskólastigi, sbr. t.d. tölvuháskóla sem starfræktur er innan Versl­unarskóla Íslands.

Háskólastig og byggðaþróun.
    Þekking og gott aðgengi að menntun eru nú meginstoðir atvinnuþróunar og ráða miklu um afstöðu fólks til búsetu. Fátt er mikilvægara fyrir byggðaþróun, eigi vel að farnast, en að þessum þáttum sé vel sinnt og að enginn landshluti sé afskiptur í aðgengi að menntun. Allvel hefur verið brugðist við þessu kalli tímans á grunnskóla- og framhaldsskólastigi, en annað er uppi á tengingnum er litið er til háskólastigs. Háskóla Íslands var ætlað að vera þjóðar­skóli er hann var stofnaður, en margt hefur skort á að svo yrði í reynd, og námsframboð á vegum skólans hefur fyrst og fremst verið bundið við höfuðborgarsvæðið. Hér er fyrst og fremst um að kenna stefnuleysi af opinberri hálfu en einnig hafa takmörkuð fjárráð ráðið nokkru um þróun skólans.
    Stofnun Háskólans á Akureyri var að vissu leyti andsvar við því hversu staðbundin starf­semi Háskóla Íslands varð í reynd, sem og stofnana er skólanum tengjast. Frumkvæðið að stofnun háskóla á Akureyri kom frá Norðlendingum, stutt af þingmönnum Norðurlands­kjördæmis eystra, þótt margir fleiri þingmenn, yfirvöld menntamála og síðan Alþingi í heild tækju undir þá stefnu að koma skólanum á fót. Ýmsir fleiri skólar, sem bjóða upp á sérhæft nám, eru nú starfræktir á háskólastigi, sumir staðsettir utan Reykjavíkur eins og Samvinnu­skólinn í Bifröst og Bændaskólinn á Hvanneyri.

Tillögur og hugmyndir um háskólanám á Austurlandi.

    Á Austurlandi hafa á síðustu 12 árum verið gerðar nokkrar tilraunir er snerta háskóla­stigið. Ber þar fyrst að nefna tillögu sem Berit Johnsen sérkennslufulltrúi flutti ásamt Guð­mundi Magnússyni fræðslustjóra í fræðsluráði Austurlandsumdæmis 9. ágúst 1984 um könn­un á „að koma á námi í sérkennslu heima í héraði fyrir starfandi kennara sem yrði skipulagt í samvinnu við KHÍ (Kennaraháskóla Íslands) og undir eftirliti hans“. Könnun sem Berit gerði hafði leitt í ljós að þörf væri á 15–20 sérkennurum í umdæminu, og voru helstu rök fyrir tillögunni að kennarar úti á landsbyggðinni mundu ekki að óbreyttu taka sig upp til að stunda framhaldsnám í launalausu leyfi. Því þyrfti að koma til nýskipan mála með fjar­kennslusniði, þannig að starfandi kennarar gætu lokið eins árs námi á tveimur árum. Tillaga þessi hlaut byr og innrituðust 16 kennarar í slíkt nám sem fór fram á tímabilinu 1987–89. Berit stjórnaði þessu námi en með henni kenndu m.a. kennarar frá KHÍ. Segja má að þessi tilraun hafi ýtt undir stofnun farskóla KHÍ árið 1992 sem nú heitir fjarskóli KHÍ, en fyrstu B.Ed. kandídatar útskrifuðust úr honum í ágúst 1996, þar af 10 kennarar af Austurlandi. Einnig ber að geta hugmyndar sem Berit Johnsen setti fram 1991 um að nýta Eiðaskóla sem eins konar miðstöð fyrir námskeiðahald, fjarkennslu og stuðning við námsmenn á háskóla­stigi. Yrði hann rekstrarlega sjálfstæð stofnun undir menntamálaráðuneytinu og þjónaði öllu landinu. Sú hugmynd hlaut þá ekki brautargengi.
    Árið 1988 tók Farskóli Austurlands til starfa og var þar um nýmæli í íslenskum fræðslu­málum að ræða. Skólinn hefur starfað í tengslum við Verkmenntaskóla Austurlands í Nes­kaupstað en starfsemi hans farið fram að heita má í öllum byggðarlögum fjórðungsins.
    Á vettvangi Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi (SSA) var sumarið 1996 rætt um nauðsyn þess að koma á háskólamenntun á Austurlandi. Aðalfundur SSA 1996 gerði svo­hljóðandi ályktun um málið:
    „Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, haldinn í Neskaupstað 29. og 30. ágúst 1996, felur stjórn SSA að undirbúa í samvinnu við stjórnvöld og forsvarsmenn skóla á háskólastigi að koma á fót háskólamenntun á Austurlandi í tengslum við austfirskt atvinnulíf og til að efla þekkingu og menntun í fjórðungnum.“
    Í júní 1996 hafði bæjarstjórn Egilsstaða skipað nefnd „til undirbúnings menntun á háskólastigi á Egilsstöðum“ og tilnefndi í hana Emil Björnsson, Helgu Hreinsdóttur og Elínu S. Einarsdóttur. Nefndin hóf störf 1. október 1996 og sneri sér m.a. til SSA með ósk um samstarf. Stjórn SSA fundaði um málið með aðilum og varð niðurstaðan í ársbyrjun 1997 að stofna nýja nefnd á grunni hinnar fyrri þannig að hún tengdi sem best saman fulltrúa framhaldsskóla og fræðslumála á Austurlandi. Varð þannig til fimm manna háskólanefnd SSA (um tíma kölluð HÁSKA-nefnd). Í henni sitja Emil Björnsson formaður, Einar Már Sigurðarson, Helga Hreinsdóttir, Helga M. Steinsson og Stefán Ólafsson. Nefndin starfar í umboði Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi og skilaði áliti til sambandsins í ágúst 1997 (fylgiskjal III).
    
Ályktun aðalfundar SSA 1997 um háskólamenntun.
    Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, sem haldinn var í lok ágúst 1997, var háskólanám og háskólamenntun á Austurlandi aðalumræðuefnið. Háskólanefnd SSA kynnti þar störf sín og könnun sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri hafði unnið fyrir nefndina. Aðalfundur SSA gerði eftirfarandi samþykkt um málið:
    „Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, haldinn á Fáskrúðsfirði dag­ana 28.–29. ágúst 1997, telur háskóla- og endurmenntun mikilvæga þætti í byggðastefnu og því nauðsynlegt að stuðla að jafnrétti til slíkrar menntunar á landsbyggðinni.
    Fundurinn lýsir yfir stuðningi við sameiginlega hugmynd í þingsályktunartillögu þing­manna Austurlands og tillögu háskólanefndar SSA um að hið fyrsta verði komið á fót mið­stöð háskóla- og endurmenntunar á Austurlandi.
    Fundurinn felur háskólanefnd SSA að vinna að stofnun slíkrar miðstöðvar í samstarfi við austfirskt atvinnulíf, aðila sem sinna háskóla-, endur- og símenntun, svo og stofnanir sem vinna að byggðamálum.
    Fundurinn minnir á að það er ríkisins að fjármagna verkefni á háskólastigi. Því þarf að leita eftir stuðningi menntamálaráðherra við málið og fá fjárveitingu frá Alþingi þegar á árinu 1998 til að koma miðstöðinni á fót.“

Ráðning starfsmanns til að sinna undirbúningi.
    Í erindi sem háskólanefnd SSA sendi frá sér eftir fundinn, dags. 20. september 1997, segir m.a.:
    „ Það er mat nefndarinnar að ekkert sé að vanbúnaði með að veita fé til undirbúnings starfsemi slíkrar miðstöðvar á Austurlandi. Hlutverk starfsmanns sem væntanlega yrði ráðinn til miðstöðvarinnar mótaði starf hennar í umboði háskólanefndar SSA og í samráði við aðila sem málið varðar.“
    Í framhaldi af þessu erindi áttu fulltrúar nefndarinnar fund 9. október 1997 með þing­mönnum Austurlands. Þar lögðu þeir m.a. fram kostnaðaráætlun upp á 6,4 millj. kr. vegna ráðningar starfsmanns til að undirbúa stofnun miðstöðvar háskóla og endurmenntunar á Austurlandi. Gert var ráð fyrir að starfsmaður yrði ráðinn frá ársbyrjun 1998 og áætlunin miðuð við eitt ár. Jafnframt kynntu þeir erindi um fjárveitingu til tilraunaverkefnis að upp­hæð 10 millj. kr. til að nýta gagnvirkt sjónvarp (fjarfundabúnað) til kennslu í framhaldsskól­um á Austurlandi. Telur nefndin að slíkur búnaður fyrir framhaldsskólana sé um leið stuðn­ingur við uppbyggingu náms á háskólastigi á Austurlandi og stórauki tækifæri til endur- og símenntunar í fjórðungnum.

Heimaaðilar með í stefnumótun.
    Af framansögðu er ljóst að á Austurlandi er vaxandi áhugi á að tengjast háskólastiginu og efla endurmenntun. Nauðsynlegt er að tryggja sem besta samvinnu yfirstjórnar mennta­mála og þeirra aðila heima fyrir sem sýna málefnum háskólastigsins áhuga. Að mati flutn­ingsmanna er vænlegt að sameina kraftana við að koma hið fyrsta á fót miðstöð háskólastigs og endurmenntunar í fjórðungnum. Menntamálaráðuneytið hefur þegar lýst jákvæðri afstöðu til hugmyndarinnar. Verulegur undirbúningur hefur farið fram heima fyrir og þaðan hafa borist eindregnar óskir um að Alþingi taki nú afstöðu til málsins. Ekki er hér gerð tillaga um aðsetur eða umfang slíkrar miðstöðvar þar eð slíkt er eðlilegur hluti frekari undirbúnings sem fram þarf að fara nái þingsályktunartillagan fram að ganga. Jafnframt er eðlilegt að Alþingi veiti fé til þess að ráða starfsmann er sinni frekari undirbúningi að því að koma mið­stöðinni á fót.
    Þáttur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi í þessu máli er afar jákvæður eins og fram kemur í starfi háskólanefndarinnar sem starfar í umboði þess. Sambandið hefur á yfir þrjátíu ára starfsferli sýnt að það megnar að fylkja Austfirðingum til stuðnings framfara­málum.
    Atvinnuþróunarfélag Austurlands hefur verið að eflast og má nú teljast samnefnari fyrir fyrirtæki og atvinnulíf í fjórðungnum. Í lögum félagsins er m.a. kveðið á um að félagið skuli miðla upplýsingum um tækni- og rekstrarmál og hafa milligöngu um námskeiðahald og aðra fræðslustarfsemi sem völ er á fyrir starfsfólk í atvinnulífinu. Vorið 1996 tók til starfa sérstök þróunarstofa á vegum Atvinnuþróunarfélagsins og nýtur hún m.a. fjárhagslegs stuðnings frá Byggðastofnun og SSA samkvæmt samningi. Miðast starfsemi þróunarstofunnar nú við þriggja ára tilraunaverkefni til að auka nýsköpun og arðsemi í atvinnulífi, m.a. með ráð­gjafarstarfi og náinni samvinnu við mennta-, þróunar- og rannsóknastofnanir í öðrum lands­hlutum. Tengsl við háskólastigið er fyrirtækjum eystra og starfsfólki þeirra mikil nauðsyn og ætti tilkoma miðstöðvar háskólastigs og endurmenntunar að létta þann róður.
    Í starfi Farskóla Austurlands hefur safnast mikilsverð reynsla við endurmenntun og nám­skeiðahald sem einnig tekur til námsþátta á háskólastigi. Farskólinn hefur nýlega tekið upp samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.
    Framhaldsskólar á Austurlandi hafa haft með sér samstarf allt frá árinu 1979 þegar sér­stök stjórnunarnefnd var sett á laggirnar. Menntamálaráðuneytið beitti sér fyrir því vorið 1996 að treysta samstarf framhaldsskólanna til að gera það markvissara en verið hefur. Hinn 5. nóvember 1997 var fyrir atbeina ráðuneytisins undirritaður formlegur samstarfssamningur milli skólanna.
    Við framkvæmd tillögunnar eru góð tengsl við háskólana í landinu nauðsynleg. Þegar hefur komið fram áhugi hjá rektorum Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri á að treysta tengslin við Austurland. Sama máli gegnir um Samvinnuháskólann á Bifröst, Kennara­háskóla Íslands, Tækniskóla Íslands og Tölvuháskóla Verslunarskóla Íslands. Margháttaða reynslu má einnig sækja til annarra landa og samhæfa íslenskum aðstæðum.
    Með samþykkt tillögunnar kæmi fram vilji Alþingis í málinu og góður grunnur væri lagður til að tengja íbúa Austurlands og atvinnulíf þar við háskólastigið og efla um leið endurmenntun og símenntun í fjórðungnum.



Fylgiskjal I.


Tillaga til þingsályktunar um upplýsinga- og


fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austurlandi.


(192. mál á 121. löggjafarþingi.)



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að sjá til þess, í samvinnu við samráðsnefnd framhaldsskóla á Austurlandi, Samtök sveitarstjórna í Austurlandskjördæmi og Atvinnuþró­unarfélag Austurlands, að hið fyrsta verði komið á fót upplýsinga- og fræðslumiðstöð há­skólastigsins á Austurlandi.
    Verkefni miðstöðvarinnar verði fyrstu árin að auðvelda og þróa tengsl nemenda fram­haldsskóla, almennings og atvinnulífs á Austurlandi við skóla og nám á háskólastigi og stuðla að fræðslu og námi á þessu skólastigi heima fyrir, m.a. með námskeiðum og fjar­kennslu.     



Fylgiskjal II.


UMSAGNIR UM 192. MÁL 121. LÖGGJAFARÞINGS

Umsögn Háskóla Íslands.


(21. apríl 1997.)



    Vísað er til bréfs menntamálanefndar Alþingis, dags. 4. febrúar sl., þar sem óskað er umsagnar Háskóla Íslands um tillögu til þingsályktunar um upplýsinga- og fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austurlandi, mál 192.
    Háskóli Íslands styður framkomna tillögu og gerir engar athugasemdir við hana.
    Beðist er velvirðingar á síðbúnu svari við erindi menntamálanefndar.

Virðingarfyllst,



Sveinbjörn Björnsson rektor.





Umsögn Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.


(24. febrúar 1997.)



(1 síða mynduð. Athugið pdf-skjalið)



F.h. Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu,



Eyjólfur Guðmundsson skólameistari.




Umsögn menntamálaráðuneytis.


(21. mars 1997.)



    Vísað er til bréfs yðar, dags. 4. þ.m., þar sem send er til umsagnar tillaga til þingsálykt­unar um upplýsinga- og fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austurlandi, 192. mál á 121. lög­gjafarþingi.
    Menntamálaráðuneytið gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við tillöguna. Telur ráðu­neytið heppilegast að heimamenn á Austurlandi hafi áfram frumkvæði í málinu en lýsir sig jafnframt reiðubúið til að veita allar nauðsynlegar upplýsingar og aðstoð við undirbúning að stofnun miðstöðvarinnar.
    Ráðuneytið bendir á að unnt er að efna til slíkrar starfsemi fyrir tilstilli upplýsinga­tækninnar og með fjarnámi. Einnig hitt að í frumvarpi til laga um almenningsbókasöfn er gert ráð fyrir að þau verði alhliða upplýsingamiðstöðvar.

F.h.r.



Stefán Baldursson.


Stefán Stefánsson.




Umsögn Háskólans á Akureyri.


(26. mars 1997.)



(3 síður myndaðar. Athugið pdf-skjalið)



Virðingarfyllst,



Þorsteinn Gunnarsson rektor.


Umsögn Atvinnuþróunarfélags Austurlands.


(7. mars 1997.)



(1 síða mynduð. Athugið pdf-skjalið)




Virðingarfyllst,


f.h. Atvinnuþróunarfélags Austurlands,



Gunnar Vignisson framkvæmdastjóri.





Umsögn Menntaskólans á Egilstöðum.


(17. mars 1997.)



(1 síða mynduð. Athugið pdf-skjalið)



Helgi Ómar Bragason, skólameistari ME.


Helgi Gíslason, formaður skólanefndar ME.




Fskj.

(1 síða mynduð. Athugið pdf-skjalið)





Umsögn Kennaraháskóla Íslands.


(27. febrúar 1997.)



    Vísað er til bréfs menntamálanefndar Alþingis, dags. 4. febrúar sl., þar sem óskað er um­sagnar um tillögu til þingsályktunar um upplýsinga- og fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austurlandi.
    Hjálögð er greinargerð starfshóps sem fjallaði um tillöguna fyrir hönd Kennaraháskóla Íslands.

Virðingarfyllst,



Þórir Ólafsson rektor.




Fskj.

Greinargerð starfshóps KHÍ.


(24. febrúar 1997.)



    Við undirrituð, sem falið var að gefa umsögn, fyrir hönd Kennaraháskólans, um tillögu til þingsályktunar um upplýsinga- og fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austurlandi, höfum lokið störfum og skilum hér með meðfylgjandi greinargerð.

Guðrún Kristinsdóttir endurmenntunarstjóri.


Ingvar Sigurgeirsson dósent.


Karl Jeppesen verkefnisstjóri.



Greinargerð um tillögu til þingsályktunar um


að hið fyrsta verði komið á fót upplýsinga- og fræðslumiðstöð


háskólastigsins á Austurlandi.



(2 síður myndaðar. Athugið pdf-skjalið)




Umsögn Hússtjórnarskólans á Hallormsstað.


(21. febrúar 1997.)



    Á fundi skólanefndar Hússtjórnarskólans á Hallormsstað 7. febrúar sl. var þingsálykt­unartillagan rædd og eftirfarandi bókað:
    „Nefndin fagnar þessari tillögu sem innleggi í umræðu um eflingu náms á Austurlandi.“

Virðingarfyllst,



Helga Hreinsdóttir,


form. skólanefndar.



Signý Ormarsdóttir,


skólameistari.



Fylgiskjal III.


Bréf háskólanefndar SSA til ráðuneytis menntamála/menntamálaráðherra


þingmanna Austurlands, formanna menntamálanefndar og fjárlaganefndar


Alþingis, Byggðastofnunar, stjórnar SSA og Atvinnuþróunarfélags Austurlands.


(20. september 1997.)






(ein síða mynduð. Athugið pdf-skjalið)








Virðingarfyllst,


f.h. háskólanefndar SSA



Emil Björnsson.



Háskólanefnd SSA skipa:    Emil Björnsson, Einar Már Sigurðarson, Helga Hreinsdóttir, Helga M. Steinsson og Stefán Ólafsson.
Framkvæmdastjóri SSA:    Björn Hafþór Guðmundsson, skrifstofa Skólabraut 10, Stöðvarfirði.

Tillögur háskólanefndar SSA um uppbyggingu háskólanáms á Austurlandi.
(Ágúst 1997.)


Stofnun miðstöðvar háskólanáms og endurmenntunar á Austurlandi.
    Stofnun slíkrar miðstöðvar er fyrsta og mikilvægasta skrefið til að efla háskólamenntun í fjórðungnum og þetta skref verður að stíga fljótlega.
    Hlutverk miðstöðvar af þessu tagi verður að skipuleggja nám og veita upplýsingar.
    Nánar gæti hlutverk miðstöðvarinnar verið eftirfarandi:
—      Leita tengsla og samstarfs við innlenda háskóla.
—      Leita eftir háskólanámi við erlenda háskóla.
—      Stuðla að fjarkennslu í fjórðungnum.
—      Stuðla að aðstöðu til rannsókna í fyrirtækjum og fræðasetrum.
—      Veita nemendum í fjarnámi við skóla utan fjórðungs aðstöðu til náms.
—      Stuðla að samstarfi við skóla og stofnanir sem sinna endur- og símenntun á Austurlandi.

Útibú frá starfandi háskóla/háskólum.
    Mikilvægt er að nýta reynslu og þekkingu sem er til staðar í háskólum í landinu.
    Fyrstu niðurstöður úr könnun RHA sýna að þörf fyrirtækja og stofnana á Austurlandi fyrir menntun er tölvuþekking, framleiðslu- og þjónustuþekking, auk tungumálakunnáttu. Til að koma til móts við niðurstöður könnunarinnar þarf HÁSKA-nefndin að skilgreina þörfina fyrir háskólastofnanir og leggja á ráðin um það hvernig fræðslu verði best við komið, með vöxt og velgengni atvinnulífsins að leiðarljósi.
    Kanna þarf óskir íbúa á Austurlandi sem vilja framhaldsnám á háskólastigi frá grunni í fjórðungnum. Sá hópur sem þarna um ræðir er m.a. nemendur sem útskrifast úr framhalds­skólum á svæðinu, fólk sem vegna búsetu, atvinnuþátttöku, fjölskylduhaga eða annarra atriða á ekki þess kost, eða vill ekki fara burt úr fjóðungnum til náms.
     Útibú háskóla og miðstöð háskólanáms og endurmenntunar ættu að starfa í nánum tengslum eða sem ein heild.
    Flest mælir með því að framhaldsskólar á Austurlandi verði virkir þátttakendur í upp­byggingu háskólanáms á svæðinu. Hægt er að vísa til fyrirmynda af þessu tagi í Vestur- og Norður-Noregi, Svíþjóð, Kanada og víða annars staðar í heiminum.
    Þegar reynsla er komin á rekstur miðstöðvar háskólanáms og endurmenntunar og/eða útibús frá starfandi háskólum, þegar við höfum náð góðum tökum á viðfangsefninu, þá er fyrst tímabært að huga að stofnun Héraðsháskóla á Austurlandi – Háskóla Austurlands.
    Um form hans, starfsemi og staðsetningu verður að fjalla síðar. En að mati HÁSKA-nefndar verður a.m.k. ekki í upphafi um hefðbundna háskólastofnun að ræða.
    Það þarf að vinna hratt en gæta ýtrustu varfærni. Þau skref sem eru tekin verður að stíga ákveðið og örugglega.
    Háskólanám á Austurlandi verður að byggjast upp með fyllstu faglegu markmið í huga.
    Ef okkur tekst vel að byggja upp nám á háskólastigi og styrkja framhaldsnám og símennt­un má öruggt telja að þeim Austfirðingum fjölgi sem leggja stund á framhaldsnám og há­skólanám – bæði heima og erlendis. Það styrkir og eflir austfirskt atvinnulíf, eykur þjónustu, styrkir stöðu framhaldsskólanna í fjórðungnum og síðast en ekki síst gerir það ákjósanlegra að setjast að og búa á Austurlandi.