Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 321 – 261. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um rafmagnseftirlit og raffangaeftirlit.
Frá Gísla S. Einarssyni.
1. Hefur öryggi neytenda verið tryggt með virku eftirliti í kjölfar breytinga á rafmagnseftirliti?
2. Hvernig fer eftirlit rafskoðunarstofa fram?
3. Er þjónusta við neytendur jafngóð og skilvirk og hún var fyrir 1994?
4. Hefur verið sýnt fram á að þjónusta og eftirlit með rafveitum sé betra nú en það var árið 1993?
5. Hefur verið tryggt að ekki komi til gjaldskrárhækkana fyrir rafmagnseftirlit, eins og fyrirheit voru gefin um árið 1993 og aftur í ræðu ráðherra á Alþingi 20. desember sl.?
6. Er unnt með skýrum dæmum að sýna fram á að kostnaður við rafmagnseftirlit hafi ekki hækkað, hvorki hjá einstaklingum né fyrirtækjum, síðan breyting varð á fyrirkomulagi þess árið 1994?
7. Hefur forstjóri Löggildingarstofu lokið háskólaprófi á sviði er tengist starfsemi stofnunarinnar, sbr. 4. gr. laga um Löggildingarstofu, nr. 155/1996?
8. Hefur deildarstjóri rafmagnsöryggisdeildar Löggildingarstofu háskólapróf í rafmagnsverkfræði eða skyldum greinum?
Skriflegt svar óskast.
Prentað upp.