Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 333 – 265. mál.
Frumvarp til laga
um breytingar á lögum um fæðingarorlof.
Flm.: Guðný Guðbjörnsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Kristín Ástgeirsdóttir,
Kristín Halldórsdóttir, Sighvatur Björgvinsson, Sigríður Jóhannesdóttir.
I. KAFLI
Breytingar á lögum um fæðingarorlof, nr. 57/1987, með síðari breytingum.
1. gr.
Foreldrar, sem gegna launuðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi, eiga rétt á fæðingar
2. gr.
Heimilt er konu að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæð
Upphaf tólf mánaða fæðingarorlofs vegna ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur, sbr. 2. gr., miðast við þann tíma þegar barnið kemur á heimilið, enda staðfesti barnaverndar
3. gr.
Foreldrar, sem gegna launuðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi, skulu fá greitt sem samsvarar fullum launum sínum í fæðingarorlofi. Um greiðslu fæðingarstyrks og fæðingar
4. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. og 3. gr. eiga foreldrar sem gegna launuðum störfum og eiga lög
II. KAFLI
Breytingar á lögum um almannatryggingar,
nr. 117/1993, með síðari breytingum.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
a. Í stað orðanna „sex mánuði“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: tólf mánuði.
b. Í stað orðsins „kjarasamningum“ í 2. mgr. kemur: lögum þessum eða kjarasamningum.
c. Í stað orðanna „sex mánuði“ í 1. málsl. 6. mgr. kemur: tólf mánuði.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:a. 3. málsl. a-liðar orðast svo: Þeir sem eiga rétt samkvæmt lögum þessum eða kjarasamningum til óskertra launa í fæðingarorlofi eiga þó ekki rétt á greiðslum fæðingardagpen
b. Í stað orðanna „sex mánuði“ í c-lið kemur: tólf mánuði.
c. F-liður fellur brott.
7. gr.
Við lögin bætist ný grein, 16. gr. a, er orðast svo:Fæðingarorlofssjóður.
a. Stofna skal sérstakan sjóð, fæðingarorlofssjóð, sem varðveita skal hjá Tryggingastofnun ríkisins. Foreldrar, sem leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi, eiga rétt á greiðslu úr sjóðnum samkvæmt þessari grein. Það er þó háð því skilyrði að foreldrar hafi að jafnaði átt lögheimili hér á landi og starfað hér á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðinguna og eigi lögheimili hér við fæðingu barnsins. Nánar skal kveðið á um lögheimilisskilyrði í reglub. Greiðslur úr fæðingarorlofssjóði til foreldra í fæðingarorlofi skulu nema fjárhæð sem samsvarar heildarlaunum þeirra samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur. Ákvæði 16. gr. um lengingu fæðingarorlofs af sérstökum ástæðum gilda einnig um foreldra sem fá greiðslur úr fæðingarorlofssjóði.
c. Greiðslur úr fæðingarorlofssjóði greiðast úr lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins gegn framvísun vottorðs læknis og sönnunar um launagreiðslur og atvinnuþátttöku við
d. Útgjöld lífeyristrygginga vegna greiðslna úr fæðingarorlofssjóði skulu greidd af framlagi atvinnurekenda til lífeyristrygginga.
8. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 15., 16. og 16. gr. a skulu fæðingarstyrkur, fæðingardagpeningar og greiðslur úr fæðingarorlofssjóði einungis greidd í níu mánuði í stað tólf frá 1. janúar 1999 til 1. janúar 2001, í tíu mánuði frá þeim tíma til 1. janúar 2002 en í tólf mánuði frá þeim tíma, sbr. þó ákvæði greinanna um framlengingu á greiðslum af sérstökum ástæðum.
III. KAFLI
Gildistaka.
9. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999.
Greinargerð.
Núverandi löggjöf um fæðingarorlof er um margt ófullnægjandi. Árið 1974 var samþykkt frumvarp sem tryggði konum sem „forfölluðust frá vinnu“ atvinnuleysisbætur í 90 daga. Fram að þeim tíma höfðu aðrar konur en þær sem voru opinberir starfsmenn aðeins átt rétt á ákveðinni lágmarksupphæð í fæðingarstyrk við fæðingu barns. Árið 1980 var umsjón greiðslna í fæðingarorlofi flutt frá Atvinnuleysistryggingasjóði til lífeyrisdeildar Trygginga
Ef litið er til Norðurlandanna er fæðingarorlof styst á Íslandi og í Danmörku eða sex mánuðir ef um einburafæðingu er að ræða. Fæðingarorlof hefur verið níu mánuðir í Finnlandi og tólf mánuðir í Svíþjóð. Í Noregi er fæðingarorlof 52 vikur eða 12 mánuðir á 80% launum eða 42 vikur á fullum launum. Í Finnlandi er greidd sama upphæð og um sjúkradagpeninga er að ræða og í Svíþjóð miðast greiðslur við laun á vinnumarkaði, en hlutfallið hefur verið breytilegt í gegnum tíðina. Nú eru greidd 75% af launum en stefnt er að hækkun upp í 80% um áramótin 1997–98. Í Danmörku fá launþegar full laun. Á Íslandi eru greiðslur vegna fæðingarorlofs háðar atvinnuþátttöku og vinnuveitendum. Þetta yfirlit sýnir að annars vegar er litið á fæðingarorlof sem hluta af bótagreiðslum almannatrygginga en hins vegar er litið á það sem samningsbundinn rétt launþega til að halda launum sínum á meðan á fæðingaror
Breytingar á lögum um fæðingarorlof hafa oft komið til endurskoðunar. Haustið 1989 var skipuð nefnd sem átti að fjalla um breytingar á lögum um fæðingarorlof. Sú nefnd samdi frumvarp sem aldrei var lagt fram. Þar var lagt til að greiðslur í fæðingarorlofi yrðu ákveðið hlutfall af tekjum, eða 80%. Opinberir starfsmenn voru á móti frumvarpinu, m.a. vegna þess að þeir töldu að það hefði leitt til skerðingar á kjörum þeirra og því verið skref aftur á bak.
Á árunum 1983–87 lögðu kvennalistakonur í þrígang fram frumvarp um að lengja fæðing
„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að láta semja frumvarp til laga um fæðingar
— að tryggja feðrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í þrjá mánuði,
— að tryggja ungbörnum umönnun beggja foreldra á fyrsta æviárinu með því að lengja fæðingarorlof í tólf mánuði í áföngum,
— að gera foreldrum kleift að taka fæðingarorlofið á lengri tíma með hlutagreiðslum að eigin vali,
— að tryggja öllum mæðrum hvíldartíma fyrir fæðingu,
— að tryggja feðrum sérstakt fæðingarorlof í tvær vikur eftir fæðingu barns, sem ekki skerðir fæðingarorlof móður,
— að fæðingarorlof verði lengra eftir fjölburafæðingu,
— að fæðingarorlof ættleiðandi foreldra, uppeldis- eða fósturforeldra lengist í áföngum til jafns við fæðingarorlof annarra foreldra,
— að endurskoða fjármögnun fæðingarorlofs þannig að stofnaður verði sérstakur fæðingarorlofssjóður sem allir atvinnurekendur, jafnt í opinberum rekstri sem einkarekstri, greiði til ákveðið hlutfall af launum allra launþega, svokallað fæðingarorlofsgjald,
— að bæta kjör foreldra í fæðingarorlofi þannig að launþegar haldi sínum launum úr fæðingarorlofssjóði. Að auki greiði Tryggingastofnun ríkisins áfram fæðingarstyrk vegna þess kostnaðarauka sem fæðing barns hefur í för með sér. Þetta eigi við um fæðingar allra barna.“
Það frumvarp sem hér er lagt fram byggir í meginatriðum á sömu markmiðum.
Öll umfjöllun um að konur eða foreldrar njóti sömu réttinda til fæðingarorlofs þarf að taka mið af því hvort verið er að greiða fólki fyrir að eignast börn óháð atvinnuþátttöku eða hvort atvinnuþátttaka og laun á vinnumarkaði móta réttarstöðuna og greiðslurnar. Konur, sem eru opinberir starfsmenn eða félagar í Sambandi íslenskra bankamanna, fá laun frá vinnuveitanda í fæðingarorlofi en ekki greiðslur frá Tryggingastofnun. Þær konur, sem starfa hjá ríkinu, halda launum sínum óskertum fyrstu þrjá mánuði fæðingarorlofs en fá eftir það grunnlaun. Þær hafa einnig rétt til að lengja fæðingarorlofið með því að vinna hluta úr degi.
Þetta á hins vegar ekki við um feður. Fjármálaráðuneytið hefur túlkar lögin þannig að karlar sem vinna hjá ríkinu eigi ekki rétt á launuðu fæðingarorlofi. Eiginmenn kvenna, sem eru ríkisstarfsmenn, eiga heldur ekki rétt á dagpeningum frá Tryggingastofnun. Þannig hafa ríkisstarfsmenn í raun takmarkaða möguleika til að skipta greiðslum í fæðingarorlofi milli foreldra. Kærunefnd jafnréttismála hefur a.m.k. tvisvar fengið kæru vegna þessa og einu sinni hefur mál af þessu tagi farið fyrir Jafnréttisráð. Í áliti kærunefndar Jafnréttisráðs frá 10. september 1993 segir m.a.: „Með framkvæmd almannatryggingalaganna stendur stór hluti feðra . . . án nokkurs réttar til greiðslna, taki þeir fæðingarorlof og eru beittir misrétti sem engin efnisleg rök virðast fyrir.“ Í niðurstöðum sínum beinir kærunefndin þeim tilmælum til fjármálaráðuneytisins að það „hlutist til um að gerðar verði þær ráðstafanir sem þarf til þess að viðurkenndur verði og tryggður réttur feðra í þjónustu ríkisins til launa í fæðingaror
Ekki hafa enn verið gerðar neinar ráðstafanir til þess að tryggja þessi réttindi feðra, samanber þó þá réttarbót sem tilkynnt var með fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins nr. 13/1997. Formlega geta feður fengið greiðslur í fæðingarorlofi í allt að fimm mánuði með leyfi móður, en það skerðir fæðingarorlofsgreiðslur til hennar sem því nemur. Árið 1993 fengu 5.499 konur greiðslur frá Tryggingastofnun í fæðingarorlofi en 17 karlar. Árið 1994 voru konurnar 5.286 en karlarnir 16. Árið 1995 fengu 4.177 konur greidda fulla dagpeninga en 252 hálfa. Á sama tíma fengu 10 karlar greidda fæðingardagpeninga. Þá fengu 5.004 konur greiddan fæðingarstyrk það ár. Árið 1996 fengu síðan 4.233 konur greidda fulla fæðingar
Reynsla annars staðar á Norðurlöndum sýnir að hægt er að hafa áhrif í þessu mikilvæga jafnréttismáli ef lög og reglur eru samin með jafnrétti kynjanna fyrir augum. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga þann kynbundna launamun sem enn ríkir. Ef einstaklingar halda ekki launum sínum í fæðingarorlofi má búast við að það foreldrið sem er tekjulægra nýti allt fæðingarorlofið nema það sé bundið við báða foreldra þannig að það nýtist ekki til fulls nema báðir foreldrar taki sinn hluta. Fáir sænskir feður fóru t.d. í fæðingarorlof fyrr en lögin urðu þannig að þeirra hluti nýttist ekki nema þeir tækju hann. Nú taka um 50% sænskra feðra ein
Flutningsmenn leggja mikla áherslu á nauðsyn þess að tryggja mun betur rétt beggja for
Þá er það mat flutningsmanna að nauðsynlegt sé að breyta fyrirkomulagi á greiðslum í fæðingarorlofi þannig að stefnt verði að því að foreldrar fái full laun í fæðingarorlofi. Því er lagt til að stofnaður verði sérstakur sjóður, fæðingarorlofssjóður, sem sé varðveittur hjá Tryggingastofnun ríkisins. Greiðslur úr þeim sjóði eiga að tryggja foreldrum full laun í fæðingarorlofi samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur, en fjármunir sjóðsins greiðast eins og fæðingardagpeningar úr lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Útgjöld lífeyristrygginga vegna greiðslna úr fæðingarorlofssjóði skulu greidd af framlagi atvinnurekenda til lífeyristrygginga. Á árinu 1996 námu þessar greiðslur 1.224 milljónum en á fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir 1.450 milljónum. Þetta frumvarp kallar á mun hærri fjárveitingar bæði vegna áfangalengingar fæðingarorlofsins úr sex í tólf mánuði og vegna þess að gert er ráð fyrir að fólk á almennum vinnumarkaði haldi launum sínum í fæðingarorlofi líkt og ríkisstarfsmenn og bankamenn. Fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi var 4.280 árið 1995 og 4.329 árið 1996. Meðallaun karla og kvenna voru 1.682 og 875 þúsund árið 1995 en 1.829 og 952 þúsund 1996. Þar sem frjósemi kvenna er 2,1 um þessar mundir má gera ráð fyrir að kostnaður við fæðingarorlof nemi um árslaunum á starfsævi hvers vinnandi manns. Hér er gert ráð fyrir að heimavinnandi fái fæðingarstyrk eins og verið hefur og að vinna námsmanna verði áfram metin sem vinna með tilliti til fæðingardagpeninga sem þyrftu að hækka í hlutfalli við laun á vinnumarkaði.
Veruleg umræða um fæðingarorlof á sér nú stað í velflestum OECD-landanna, um vaxandi atvinnuþátttöku kvenna á öllum sviðum og þá kröfu að foreldrar sitji við sama borð varðandi réttindi og skyldur til fæðingarorlofs. Stórfyrirtæki og atvinnurekendur sýna málinu yfirleitt mikinn áhuga því að mikið er í húfi, ekki síst þegar um sérhæfðan mannafla er að ræða.
Með aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu skuldbinda stjórnvöld sig til að tryggja launafólki sama lágmarksrétt hér á landi og gildir í löndum Evrópusambandsins. Með til
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lagðar eru til breytingar á ákvæði 2. gr. laga um fæðingarorlof. Í fyrsta lagi er lagt til að fæðingarorlof verði lengt úr sex mánuðum í tólf, en slíkt verður þó ekki gert í einu lagi, sbr. ákvæði til bráðabirgða. Í því ákvæði er gert ráð fyrir því að fæðingarorlofið verði níu mánuðir frá 1. janúar 1999 til 1. janúar 2001, tíu mánuðir frá þeim tíma til 1. janúar 2002 og tólf mánuðir frá þeim tíma, sbr. athugasemdir við 4. gr. Þá er í öðru lagi kveðið á um að foreldrar geti tekið hluta fæðingarorlofsins með hálfu starfi og að orlofið lengist þá sem þeim tíma nemur. Í þriðja lagi er lagt til að ákvæði f- liðar 16. gr. almannatryggingalaga verði tekið upp í lögin en þar er gert ráð fyrir því að foreldrar geti skipt með sér fæðingarorlofi, t.d. verið báðir í orlofi á sama tíma að fullu eða að hluta. Varðandi það að foreldrar geti báðir verið í fæðingarorlofi að fullu á sama tíma er fyrst og fremst átt við tvær vikur á fyrstu átta vikunum eftir fæðingu barns, sbr. athugasemdir við 2. gr., enda er litið svo á að það sé í þágu barnsins að það fái að vera sem lengst heima. Í fjórða lagi er síðan lagt til að af tólf mánaða fæðingarorlofi verði sex mánuðir sérstaklega ætlaðir móður, þrír sérstaklega ætlaðir föður en þremur mánuðum geti foreldrar skipt að vild. Ef faðir nýtir sér ekki sinn sjálfstæða rétt til fæðingarorlofs fellur hann niður, sbr. hér einnig ákvæði til bráðabirgða, athugasemdir við 4. gr.
Um 2. gr.
Lögð er til sú breyting á 3. gr. laga um fæðingarorlof að föður verði tryggður sjálfstæður réttur til fæðingarorlofs í tvær vikur á fyrstu átta vikunum eftir fæðingu barns. Þessi réttur felur það í sér að faðir getur hvenær sem er á fyrstu átta vikunum frá fæðingu barns verið heima ásamt móður á fullum launum. Rétturinn skerðir hvorki rétt hans né móður til fæðingarorlofs skv. 2. gr. laga um fæðingarorlof. Þennan tíma verður að nýta í þágu barns, sbr. nánar athugasemdir við 1. gr. Sama regla gildi ef barn er ættleitt eða tekið í varanlegt fóstur.
Um 3. gr.
Lagt er til að foreldrar sem gegna lauðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi fái greidd full laun í fæðingarorlofi eða samsvarandi hlutfall launa ef um hlutastarf er að ræða. Ákvæði um greiðslur í fæðingarorlofi er að finna í 15. og 16. gr. almannatryggingalaga og nýmæli 16. gr. a um fæðingarorlofssjóð. Ráðherra skal ákveða með reglugerð nánari skilgreiningu á fullum launum.
Um 4. gr.
Hér er gert ráð fyrir að í ákvæði til bráðabirgða komi fram að þrátt fyrir breytingar á ákvæðum 2. og 3. gr. laga um fæðingarorlof muni lenging fæðingarorlofs úr sex mánuðum í tólf ekki gerast í einu lagi og að ákvæðin komi ekki að fullu til framkvæmda fyrr en árið 2002, sbr. athugasemdir við 1. gr.
Um 5. gr.
Lagðar eru til nokkar breytingar á 15. gr. almannatryggingalaga til samræmis við breyt
Um 6. gr.
Lagðar eru til nokkrar breytingar á 16. gr. almannatryggingalaga til samræmis við breyt
Um 7. gr.
Lagt er til það nýmæli að stofnaður verði sérstakur sjóður, fæðingarorlofssjóður, sem varðveittur verði hjá Tryggingastofnun ríkisins. Greiðslur úr sjóðnum eiga að tryggja foreldrum full laun í fæðingarorlofi samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur. Fjárhæðir sem greiddar verða úr sjóðnum greiðast úr lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins að upp
Um 8. gr.
Með hliðsjón af ákvæði til bráðabirgða um lengingu fæðingarorlofs í áföngum, sbr. athugasemdir við 4. gr., er hér lagt til að í ákvæði til bráðabirgða í almannatryggingalögum verði kveðið á um greiðslur í samræmi við fyrrnefnt ákvæði.
Um 9. gr.
Lagt er til að lög þessi öðlist ekki gildi fyrr en 1. janúar 1999. Með því gefst nokkur aðlögunartími til þess að undirbúa það að greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi munu aukast með tilkomu fæðingarorlofssjóðs, sbr. nánar umfjöllun í greinargerð.