Ferill 267. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 335 – 267. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um póstburðargjöld.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvaða ástæður liggja að baki því að taka upp tvö gjaldskrársvæði póstburðargjalda blaða og tímarita innan lands, þar með talið fréttabréfa og bæklinga, frá og með 1. októ
2. Hver verður verðmismunur á póstburðargjöldum milli gjaldsvæða eftir þá breytingu?
3. Hve mikil var gjaldskrárhækkunin á framangreindum póstburðargjöldum frá 1. október sl. og hve mikil hefur hún verið sl. 15 mánuði? Hvaða forsendur liggja að baki hækkun
4. Hver verður tekjuauki póstþjónustunnar við þessa gjaldskrárbreytingu?