Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 343 – 273. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um starfsleyfi atvinnubifreiðastjóra.

Frá Guðmundi Lárussyni.



     1.      Hvaða skilyrði eru sett fyrir atvinnuleyfum sendibifreiðastjóra og vörubifreiðastjóra?
     2.      Telur ráðherra ástæðu til að sett verði löggjöf eða reglur um starfsemi sendibifreiða og vörubifreiða?
     3.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að sett verði á stofn sérstök starfsleyfaskrifstofa sem sjái um úthlutun starfsleyfa og hafi eftirlit með framkvæmd laga nr. 61/1995 og reglna settra samkvæmt þeim?