Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 350 – 280. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um greiðslur langlegusjúklinga til sjúkrastofnana.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



     1.      Hverjir verða að greiða af eigin tekjum (eða eftirlaunum) sjúkrahúsvist þegar vistin hefur varað lengur en fjóra mánuði eða það sem á vantar t.d. þegar bætur almannatrygginga, ef einhverjar eru, hafa verið látnar renna til sjúkrahússins?
     2.      Á hvaða stofnunum gildir þessi regla og hver er meðalupphæð á mánuði á þeim stofnunum sem fá þessar greiðslur?
     3.      Hvað er sjúklingi ætlað til ráðstöfunar
       a.      fyrir sjálfan sig,
       b.      fyrir maka sem býr áfram á eigin heimili?
     4.      Gildir þetta fyrirkomulag fyrir alla aldursflokka?