Ferill 287. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 358 – 287. mál.
Frumvarp til laga
um sameiningu Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborgar.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Hinn 21. júní 1997 fóru fram atkvæðagreiðslur í Kjalarneshreppi og Reykjavíkurborg um tillögu um sameiningu þessara sveitarfélaga. Var tillagan samþykkt í báðum sveitarfélögun
Kjalarneshreppur er í Kjósarsýslu og skv. 31. stjórnarskrárinnar er Kjósarsýsla í Reykja
Skipting kjördæma er eins og áður segir ákveðin í 31. gr. stjórnarskrárinnar og er þar um tiltekna landfræðilega afmörkun að ræða. Sú afmörkun er ekki að neinu leyti tengd skiptingu landsins í sveitarfélög og getur sameining sveitarfélaga yfir kjördæmamörk því ekki ein og sér leitt til breytinga á kjördæmamörkum. Því er talið rétt að taka skýrt fram að frumvarp þetta, ef það verður að lögum, hafi ekki áhrif á skipan kjördæma við alþingiskosningar. Hugsanlegar breytingar á kjördæmamörkum verði hins vegar skoðaðar heildstætt.
Verði frumvarp þetta að lögum mun félagsmálaráðuneytið í samræmi við 112. gr. sveitarstjórnarlaga staðfesta sameiningu Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborgar og gefa út tilkynningu um sameininguna þar sem fram komi meðal annars heiti sveitarfélagsins, fjöldi fulltrúa í nýrri sveitarstjórn, gildistaka sameiningar o.fl.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um sameiningu
Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborgar.
Ekki verður séð að frumvarpið hafi í för með sér útgjaldaauka fyrir ríkissjóð.