Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 371 – 299. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um afskipti ríkisstjórnar af gjaldskrárbreytingum Pósts og síma hf.
Frá Guðmundi Árna Stefánssyni.
1. Var ríkisstjórninni kynnt fyrir fram sú fyrirætlun samgönguráðherra að staðfesta nýja gjaldskrá Pósts og síma hf. sem tók gildi 1. nóvember sl.?
2. Ef svo var, gerði ríkisstjórnin engar athugasemdir við þær fyrirætlanir og lagði þar með blessun sína yfir þá gjaldskrárbreytingu?
3. Ef svo var ekki, telur ráðherra þá eðlilegt að stórmál af þessum toga, er snertir verulega útgjöld heimilanna, sé til lykta leitt án atbeina ríkisstjórnarinnar?
4. Hafði ráðherra engar upplýsingar um það fyrir fram að þessar umtalsverðu gjaldskrárbreytingar væru í aðsigi?
5. Kom ráðherra jafnmikið á óvart og öðrum landsmönnum sú stórfellda hækkun símkostnaðar sem ákvörðun samgönguráðherra og stjórnar Pósts og síma hf. leiddi af sér þegar hún var tilkynnt fjölmiðlum, sbr. síðari afskipti ráðherra af málinu?