Ferill 331. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 468 – 331. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 56/1996, um spilliefnagjald.

Frá umhverfisnefnd.



1.      Við bætist ný grein er verði 1. gr. og orðist svo:
              Við 1. mgr. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Ráðherra ákveður þókn un nefndarmanna fyrir setu í nefndinni.
2.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
              Við 1. mgr. 5. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Þá er spilliefnanefnd heimilt að greiða förgun úrgangsefna sem blandast hafa vörum sem greitt hefur verið af skv. 6. gr., enda sé blöndunin hluti af eðlilegri notkun vörunnar.
3.      Við 2. gr. 6. tölul. falli brott.