Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 484 – 350. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um nýjar starfsreglur fyrir viðskiptabankana.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvaða reglur munu gilda um starfskjör stjórnenda hlutafélagabankanna um næstu áramót, þar með taldar aukagreiðslur fyrir setu í nefndum, stjórnum, ráðum og fyrirtækjum tengdum bönkunum og risnu- og bifreiðahlunnindi?
2. Hver verða heildarstarfskjör stjórnenda hlutafélagabankanna með nýjum starfsreglum?
3. Verða settar almennar starfsreglur um risnu- og ferðakostnað fyrir bankana? Ef svo er, hverjar eru þær reglur og hver mun leggja mat á nauðsyn utanlandsferða á vegum bank
4. Mun áfram verða greiddur ferðakostnaður maka, þar með taldir dagpeningar?
5. Mun ráðherra beita sér fyrir því að nýjar starfsreglur um risnu- og ferðakostnað og starfskjör stjórnenda bankanna verði einnig teknar upp í Seðlabankanum?