Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 526 – 249. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Frá Pétri H. Blöndal og Gunnlaugi M. Sigmundssyni.
1. Við 1. gr. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Lífeyrissjóður er eign sjóðfélaga sinna. Innstæða eða réttindi samkvæmt samningi um tryggingarvernd eru eign rétthafa.
2. Við 18. gr. Á eftir orðinu „sjóðfélaga“ í fyrri málslið 2. mgr. komi: sem og hlutdeild hans í hreinni eign til greiðslu lífeyris.
Greinargerð.
Ekki hefur verið ljóst hverjir eru eigendur lífeyrissjóða. Sjóðfélagar eiga réttindi hjá sjóðn
Skipting iðgjalds í 4% og 6% er hluti af kjarasamningum og í raun marklaus. Hækka mætti laun allra landsmanna um 6% iðgjaldshlut atvinnurekenda og launþegar greiddu 9,434% (=10%/1,06) af hækkuðu laununum og báðir aðilar stæðu eins.
Þegar launþegi lýkur starfi hjá atvinnurekanda af einhverri ástæðu á hann einn kröfu á líf
Stjórnir lífeyrissjóða hafa yfirleitt verið skipaðar til helminga af samtökum atvinnurekenda og launþega, en sú skipan mála grundvallast á hinni gömlu hugmynd um húsbóndaábyrgð. Þá voru það hagsmunir atvinnurekenda að sjóðirnir væru vel reknir. Eftir að þessi hugmynd riðl
Í síðari breytingartillögunni er lagt til að sérhverjum sjóðfélaga verði sendar upplýsingar um það hversu stóran hlut hann „á“ í hreinni eign sjóðsins til greiðslu lífeyris og skal þá miða við tryggingafræðilegt mat á verðmæti áunninna réttinda. Þannig verði sjóðfélaginn betur meðvitaður um þessa eign sína. Að meðaltali eiga sjóðfélagar réttindi hjá lífeyrissjóðum að verðmæti yfir 2 millj. kr.