Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 532 – 289. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 13. des.)
1. gr.
a. 7. tölul. 1. mgr. orðast svo: Yfirlýsingu um að skipverji hafi hlotið öryggisfræðslu í Slysavarnaskóla sjómanna eða á annan hátt. Veita má skipverja sem skráður er í fyrsta sinn sex mánaða frest til að fullnægja ákvæðinu.
b. Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Samgönguráðherra er heimilt með reglugerð að setja það skilyrði fyrir lögskráningu að skipverjar sæki öryggisfræðslunámskeið skv. 7. tölul. 1. mgr. þessarar greinar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
2. gr.
Skipstjórnarmenn og aðrir skipverjar sem hafa skráð sig á námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna fyrir 1. janúar 1998 fá frest til 1. apríl 1999 til að fullnægja skilyrðum 7. tölul. 1. mgr. 7. gr. laganna.
3. gr.