Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 542 – 355. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 80/1996, um framhaldsskóla.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
Skólameistari ræður aðstoðarskólameistara til fimm ára í senn, áfangastjóra til allt að fjögurra ára og deildarstjóra til tveggja ára að höfðu samráði við skólanefnd. Hann ræður einnig kennara, námsráðgjafa, starfsfólk skólasafns og aðra starfsmenn skólans að höfðu samráði við skólanefnd.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpi þessu er lagt til að heimilað verði að afmarka ráðningartíma aðstoðar
Frá því að rammalög voru fyrst sett um framhaldsskóla hefur ráðningu aðstoðarstjórnenda verið háttað eins og fram kemur í 1. gr. frumvarpsins. Með nýjum framhaldsskólalögum, nr. 80/1996, var hins vegar horfið frá þeirri tilhögun í ljósi meginreglna nýrra laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 (sjá einkum 41. gr. laganna). Í ljósi þess að störf aðstoðarskólameistara, áfangastjóra og deildarstjóra geta verið afgerandi fyrir þróun skóla
Hér eiga sömu sjónarmið við og um ráðningu skólameistara í framhaldsskólum. Í 2. mgr. 11. gr. laga nr. 80/1996, um framhaldsskóla, segir: „Menntamálaráðherra skipar skólameist
Frumvarpið nýtur stuðnings Hins íslenska kennarafélags, Kennarasambands Íslands og Skólameistarafélags Íslands.
Í 1. gr. er kveðið á um tímabindingu ráðningar aðstoðarstjórnenda í framhaldsskólum. Störf aðstoðarskólameistara, áfangastjóra og deildarstjóra geta verið afgerandi fyrir þróun skóla
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum
um framhaldsskóla, nr. 80/1996.