Ferill 369. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 601 – 369. mál.



Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um skipaðan talsmann barna í forsjármálum.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hversu oft hefur barni verið skipaður talsmaður til að gæta hagsmuna þess við úrlausn forsjármáls frá því að heimildin var sett í lög, sbr. 34. gr. barnalaga,
     a.      þegar dómstóll sker úr ágreiningsmáli,
     b.      þegar dómsmálaráðuneyti fer með úrskurðarvald?
    Svarið óskast sundurliðað eftir dómstólum.


Skriflegt svar óskast.