Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 607 – 330. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, og l. nr. 2/1997, um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga.

Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar (PHB).



     1.      Á undan 1. gr. komi fimm nýjar greinar er orðist svo:
            a.      (1. gr.)
                       10. gr. laganna orðast svo:
                      Stjórn lífeyrissjóðsins skal árlega láta fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins. Niðurstöður skulu liggja fyrir 1. maí ár hvert.
                      Tryggingafræðingurinn skal meta hver iðgjaldaprósenta launagreiðenda þarf að vera fyrir A-deild, sbr. 13. gr., og fyrir B-deild, sbr. 23. og 25. gr. Fyrir hvora deild skal gilda: Iðgjaldaprósentan er að lágmarki 6% af iðgjaldastofni deildarinnar. Þó skal hún hækkuð ef þörf krefur þannig að hrein eign deildarinnar til greiðslu lífeyris ásamt núvirði væntanlegra iðgjalda til deildarinnar séu á hverjum tíma jafnhá núvirði væntanlegs lífeyris. Við mat á væntanlegum iðgjöldum og lífeyri skal miða við sjóð félaga í hvorri deild á þeim tíma sem athugunin nær til.
                      Stjórn lífeyrissjóðsins skal ákveða nýja iðgjaldaprósentu launagreiðenda fyrir A-deild og fyrir B-deild fyrir 1. júní ár hvert í samræmi við niðurstöður skv. 2. mgr. og skulu þær gilda frá 1. júlí. Iðgjald launagreiðenda skal námundað að næsta ½% af launum.
                       Nánari reglur um tryggingafræðilega athugun skal setja í samþykktir lífeyris sjóðsins.
            b.      (2. gr.)
                      Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
                       a.      4. mgr. orðast svo:
                            Launagreiðandi greiðir iðgjald til A-deildar sem prósentu af launum sjóðfélaga skv. 1. mgr. Iðgjaldaprósentan er ákveðin í samræmi við tryggingafræðilega nið urstöðu, sbr. 10. gr.
                       b.      5. mgr. fellur brott.
            c.      (3. gr.)
                       Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
                       a.      3. mgr. orðast svo:
                            Launagreiðandi greiðir iðgjald til B-deildar sem prósentu af launum sjóðfélaga skv. 1. mgr. Iðgjaldaprósentan er ákveðin í samræmi við tryggingafræðilega nið urstöðu, sbr. 10. gr.
                       b.      Í stað orðanna „10% af launum þeim sem tilgreind eru í 3. mgr. þessarar greinar í iðgjald“ í 4. mgr. kemur: 4% iðgjaldahlut hans.
            d.      (4. gr.)
                       Í stað orðanna „launagreiðandi 6%“ í 3. mgr. 25. gr. laganna kemur: launagreið andi iðgjald skv. 10. gr.
            e.      (5. gr.)
                      32. gr. laganna fellur brott.
     2.      Við 1. gr., er verði 6. gr. Greinin orðist svo:
                  33. gr. laganna fellur brott.
     3.      Við 2. gr., er verði 7. gr. Greinin orðist svo:
                  34. gr. laganna fellur brott.
     4.      Á eftir 2. gr., er verði 7. gr., komi ný grein er orðist svo:
                  Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða V er orðast svo:
                  Tryggingafræðingur sjóðsins skal meta áfallna skuldbindingu sjóðsins umfram upp reiknaða eign hans vegna sjóðfélaga sem höfðu áunnið sér rétt við gildistöku laga þess ara. Skal hann gera tillögur til stjórnar um skiptingu skuldbindingarinnar á launagreið endur eftir reglum sem hér segir: Skuldbindingunni skal skipt á launagreiðendur í hlut falli við áunna réttindaprósentu hvers sjóðfélaga hjá hverjum launagreiðanda. Til frá dráttar komi núvirt eign sjóðsins við gildistöku laga þessara skipt á launagreiðendur í sömu hlutföllum, sbr. reglur sem tryggingafræðingurinn gerir tillögu um.
                  Skuldbindinguna skulu launagreiðendur gera upp með skuldabréfi til 40 ára með jöfnum ársgreiðslum (annuitet) og með vöxtum sem eru í samræmi við tryggingafræði lega matið. Skuldabréfið verði verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs.
     5.      Á undan 3. gr. komi fjórar nýjar greinar er orðist svo:
            a.      (9. gr.)
                     Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
                       a.      3. mgr. orðast svo:
                          Launagreiðandi greiðir iðgjald til sjóðsins sem prósentu af launum sjóðfélaga skv. 1. mgr. Iðgjaldaprósentan er ákveðin í samræmi við tryggingafræðilega nið urstöðu, sbr. 16. gr.
                       b.      Í stað orðanna „10% af launum þeim sem tilgreind eru í 3. mgr. í iðgjald“ í 4. mgr. kemur: 4% iðgjaldahlut hans.
            b.      (10. gr.)
                      Í stað „launagreiðandi 6%“ í 3. mgr. 9. gr. laganna kemur: launagreiðandi iðgjald skv. 16. gr.
            c.      (11. gr.)
                      16. gr. laganna orðast svo:
                      Stjórn sjóðsins skal árlega láta fara fram tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðsins. Niðurstöður skulu liggja fyrir 1. maí ár hvert.
                      Tryggingafræðingurinn skal meta hver iðgjaldaprósenta launagreiðenda þarf að vera. Iðgjaldaprósentan er að lágmarki 6%. Þó skal hún hækkuð ef þörf krefur, þann ig að hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris ásamt núvirði væntanlegra iðgjalda séu á hverjum tíma jafnhá núvirði væntanlegs lífeyris. Við mat á væntanlegum iðgjöldum og lífeyri skal miða við sjóðfélaga á þeim tíma, sem athugunin nær til.
                      Stjórn sjóðsins skal ákveða nýja iðgjaldaprósentu launagreiðenda fyrir 1. júní ár hvert í samræmi við niðurstöður skv. 2. mgr. og skulu þær gilda frá 1. júlí. Iðgjald launagreiðenda skal námundað að næsta ½% af launum.
                      Nánari reglur um tryggingafræðilega athugun skal setja í samþykktir sjóðsins.
            d.      (12. gr.)
                      18. gr. laganna fellur brott.
     6.      Við 3. gr., er verði 13. gr. Greinin orðist svo:
                  20. gr. laganna fellur brott.
     7.      Á eftir 3. gr., er verði 13. gr., komi ný grein er orðist svo:
                  Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða er orðast svo:
                  Tryggingafræðingur sjóðsins skal meta áfallna skuldbindingu sjóðsins umfram upp reiknaða eign hans vegna sjóðfélaga sem höfðu áunnið sér rétt við gildistöku laga þess ara. Skal hann gera tillögur til stjórnar um skiptingu skuldbindingarinnar á launagreið endur eftir reglum sem hér segir: Skuldbindingunni skal skipt á launagreiðendur í hlut falli við áunna réttindaprósentu hvers sjóðfélaga hjá hverjum launagreiðanda. Til frá dráttar komi núvirt eign sjóðsins við gildistöku laga þessara skipt á launagreiðendur í sömu hlutföllum, sbr. reglur sem tryggingafræðingurinn gerir tillögu um.
                  Skuldbindinguna skulu launagreiðendur gera upp með skuldabréfi til 40 ára með jöfnum ársgreiðslum (annuitet) og með vöxtum sem eru í samræmi við tryggingafræði lega matið. Skuldabréfið verði verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs.