Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 610 – 313. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðmundar Árna Stefánssonar um þróun lyfjaverðs.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver hefur þróun lyfjaverðs orðið eftir að ný lyfjalög öðluðust gildi 1. júlí 1994 og ákvæði VII. kafla (um stofnun lyfjabúða og lyfsöluleyfi) og XIV. kafla (um lyfjaverð) komu til framkvæmda 1. nóvember 1995?
2. Hver hefur þróun á verði 20 mest seldu lyfseðilsskyldu lyfjanna orðið á þessu tímabili?
3. Hefur aukin samkeppni samfara meira frelsi heildsala og smásala til verðákvörðunar og meiri þjónusta á þessum vettvangi, þ.e. með fjölgun lyfjabúða, leitt til aukins kostnaðar og hækkaðs verðs til neytenda og enn fremur aukinnar neyslu?
4. Í hve mörgum tilfellum selja heildsalar og smásalar lyfseðilsskyld lyf á hámarksverði sem lyfjaverðsnefnd hefur ákveðið og hversu oft og mikið er verðið undir hámarki samkvæmt upplýsingum lyfjaverðsnefndar, sbr. 40. gr. lyfjalaga?
5. Hefur frjáls verðlagning lyfja, sem seld eru án lyfseðils, skv. 40. gr. lyfjalaga leitt til söluaukningar og verðbreytinga og þá hverra?
6. Er það mat ráðherra að auknar heimildir til upplýsinga og kynningar í lyfjalögum hafi aukið neyslu lyfja sem seld eru án lyfseðils eða breytt neyslumunstri á annan veg?
7. Er ráðherra sömu skoðunar nú og hann var sem stjórnarandstöðuþingmaður á síðasta kjörtímabili þegar frumvarp til nýrra lyfjalaga var til umræðu og afgreiðslu á Alþingi?
Ákvæði VII. kafla, um stofnun lyfjabúða og lyfsöluleyfi, og XIV. kafla, um lyfjaverð, laga nr. 93/1994 tóku gildi 15. mars 1996. Ekki liggja fyrir nægar upplýsingar til að hægt sé að svara 4. lið fyrirspurnarinnar. Leitast er við að svara 1., 2., 3. og 5. lið í tvennu lagi, annars vegar um þróun lyfjaverðs og hins vegar um þróun lyfjanotkunar.
Breytingar á hámarksverði lyfja.
Hagstofan mælir breytingar á opinberu hámarksverði á þriggja mánaða fresti með sér
Á eftirfarandi töflu má sjá að hámarksverð lyfja hefur lækkað að meðaltali um 6,6% frá 1. janúar 1996 til 1. október 1997.
|
Lyfjaliður vísitölu daggjaldastofnana. |
||||||||||||
| jan. | feb. | mars | apríl | maí | júní | júlí | ágúst | sept. | okt. | nóv. | des. | |
| 1996 | 102,7 | 102,7 | 102,7 | 102,7 | 102,7 | 102,7 | 102,7 | 101,5 | 101,5 | 101,5 | 101,8 | 101,8 |
| 1997 | 100,0 | 100,0 | 100,0 | 97,9 | 97,9 | 97,9 | 96,9 | 96,9 | 96,9 | 95,9 | 95,9 | 95,9 |
1. Innflutningsverð hefur lækkað, þar sem íslenska krónan hefur styrkst gagnvart helstu lyfjainnflutningsmyntunum, að breska pundinu undanskildu.
2. Breytt hámarksverð frá 1. janúar 1997 í heildsölu og smásölu.
3. Samkeppni í sölu lyfja á viðmiðunarverðskrá.
Þróun hámarksverðs 20 mest seldu lyfseðilsskyldu lyfjanna.
Samanburður á hámarksverði 1. mars 1996 og 1. nóvember 1997 á 20 mest seldu lyf
Breytingar á lyfjaverði til sjúklinga.
Samkeppnisstofnun kannaði í mars og í nóvember á þessi ári verð 32 algengra lyfja á höfuðborgarsvæðinu (sjá fylgiskjal II). Þar kemur fram að það verð sem sjúklingur greiðir fyrir lyf er að jafnaði lægra en greiðsluhluti hans samkvæmt ákvörðuðu hámarksverði.
Þegar borinn er saman hluti sjúklings samkvæmt gildandi opinberu lyfjaverði 1. mars 1996 og meðalverð samkvæmt könnun Samkeppnisstofnunar 1. nóvember 1997 kemur fram að hluti sjúklings hefur lækkað í nær öllum tilvilkum. Sé lægsta verðið skoðað sést að hluti sjúklings í lyfjaverði hefur lækkað að meðaltali um 40%.
Hluti sjúklings samkvæmt opinberu hámarksverði hefur hins vegar hækkað frá því 1. mars 1996 á flestum þeim lyfjum sem könnunin nær til. Skýringar á því eru m.a. þær að ódýrari lyf hafa hækkað í verði og dýrari lækkað. Þannig var hámarksverð lyfja sem kostuðu minna en 3.100 kr. hækkað og eru flest lyfin sem könnun Samkeppnisstofnunar nær til undir þeirri upphæð.
Ljóst var um síðustu áramót að hluti sjúklings í lyfjaverði hafði lækkað verulega og mið
Í vísitölu neysluverðs er sérstakur lyfjaliður sem mælir breytingar á hluta sjúklings í lyfjaverði. Í apríl á þessu ári breytti Hagstofan mælingaraðferðum sínum á þessum lið, í stað þess að reikna út hluta sjúklings af hámarksverði er nú gerð könnun mánaðarlega í nokkrum apótekum á verði til sjúklinga á algengum lyfjum. Eins og sjá má í eftirfarandi töflu hefur hluti sjúklings frá því í apríl á þessu ári lækkað um 5%:
|
Lyfjaliður vísitölu neysluverðs. |
||||||||||
| mars | apríl | maí | júní | júlí | ágúst | sept. | okt. | nóv. | des. | |
| 1997 | 100 | 79,8 | 78,4 | 80,2 | 80,9 | 80,2 | 80,4 | 79,8 | 78,9 | 75,8 |
Breyting á verði lausasölulyfja.
Verðkönnun Samkeppnisstofnunar í nóvember 1997 nær til þriggja lausasölulyfja og sé verð sem þar er birt borið saman við opinbert verð 1. mars 1996 kemur í ljós að í nokkrum apótekum eru lyfin þrjú seld á hærra verði, en í langflestum apótekunum hefur verðið lækkað og geta nú sjúklingar fengið þessi þrjú lyf á 25–35% lægra verði en 1. mars 1996.
Um lyfjanotkun.
Ráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir heildarlyfjanotkun þjóðarinnar, mælt í skil
Svar við 5. lið fyrirspurnarinnar.
Eins og áður er komið fram hefur orðið aukning á sölu lausasölulyfja sem að mestu skýr
Svar við 6. lið fyrirspurnarinnar.
Ráðherra er enn sömu skoðunar, enda hafa allar afleiðingar aukins frelsis í lyfjasölu og verðlagningu lyfja ekki enn komið fram.
Fylgiskjal I.
Fylgiskjal II.
Fylgiskjal III.
Fylgiskjal IV.