Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 666 – 329. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 19. des.)
1. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Hópferðabifreiðar, þ.e. ökutæki sem aðallega eru ætluð til fólksflutninga, sem skráðar eru fyrir 18 farþega eða fleiri að meðtöldum ökumanni, skulu undanþegnar vörugjaldi.
b. Við 3. tölul. bætast tveir nýir stafliðir, f- og g-liður, sem orðast svo:
f. Dráttarbifreiðar, þ.e. bifreiðar sem aðallega eru gerðar til að draga annað ökutæki, sem eru yfir 5 tonn að heildarþyngd.
g. Vélknúin ökutæki til sérstakra nota, gálgabifreiðar o.fl. sem ekki eru aðallega hönnuð til flutnings á mönnum eða vörum og ekki eru tilgreind annars staðar í þessari grein, að heildarþyngd yfir 5 tonn.
c. Við a-lið 4. tölul. bætist: að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
d. Við d-lið 4. tölul. bætist: að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
2. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Þá eru ökutæki sem hafa í för með sér hverfandi mengun og eru knúin óhefðbundnum orkugjafa, svo sem rafhreyfli eða vetni, undanþegin gjaldskyldu.
b. 5. tölul. 2. mgr. fellur brott.
3. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.