Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 709 – 391. mál.
Frumvarp til laga
um rétt til launa í veikindaforföllum.
Flm.: Hjörleifur Guttormsson, Guðrún Helgadóttir, Kristinn H. Gunnarsson,
Margrét Frímannsdóttir, Ragnar Arnalds, Sigríður Jóhannesdóttir,
Steingrímur J. Sigfússon, Svavar Gestsson og Ögmundur Jónasson.
I. KAFLI
Breyting á lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum
og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, nr. 19/1979.
1. gr.
Við 5. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Til forfalla frá vinnu vegna sjúkdóma eða slysa samkvæmt lögum þessum teljast hvers kyns aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar af læknisfræðilegum ástæðum, rannsóknir og önn
Heilbrigðir líffæragjafar njóta réttar til launa í forföllum frá vinnu vegna líffæragjafar í samræmi við ákvæði laga þessara.
2. gr.
8. gr. laganna orðast svo:Nú vill launamaður neyta réttar síns skv. 4.–6. gr. og skal hann þá, ef atvinnurekandi ósk
II. KAFLI
Breyting á sjómannalögum, nr. 35/1985.
3. gr.
36. gr. laganna orðast svo:Ef skipverji forfallast vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann verður fyrir meðan á ráðn
Hafi skipverji verið ráðinn á sama skip hjá sama útgerðarmanni í tvö ár samfellt skal hann, auk þess sem í 1. mgr. segir, halda föstu kaupi, kauptryggingu eða sérlega umsömdu veikindakaupi í allt að einn mánuð en í allt að tvo mánuði eftir fjögurra ára samfellda ráðn
Skipverji, sem forfallast frá vinnu vegna slysa við vinnu, á leið til eða frá vinnu eða vegna atvinnusjúkdóma sem stafa af vinnunni, skal fá greitt fast kaup, kauptryggingu eða sérlega umsamið veikindakaup í allt að þrjá mánuði til viðbótar greiðslum skv. 1. og 2. mgr.
Skipverji á ekki rétt á kaupi þann tíma sem hann hliðrar sér ólöglega hjá að inna störf sín af hendi né fyrir þann tíma sem hann er óstarfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur leynt vísvitandi við ráðningu sína. Sama gildir ef skipverji er ekki starfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur sjálfur bakað sér af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
Nú vill skipverji neyta réttar síns skv. 1., 2. og 3. mgr. og skal hann þá, ef atvinnurekandi óskar þess, afhenda honum vottorð læknis er sýni að hann hafi verið forfallaður.
Til forfalla frá vinnu vegna sjúkdóms eða slysa samkvæmt lögum þessum teljast hvers kyns aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar af læknisfræðilegum ástæðum, rannsóknir og önn
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Frumvarp þetta var upphaflega flutt á 117. löggjafarþingi og endurflutt á 118. löggjafarUm rétt launafólks til launa í veikindaforföllum gilda lög nr. 19/1979, sem ná til land
Í stuttu máli má segja að þróun undanfarinna ára hafi aukið misrétti milli einstakra hópa launafólks hvað varðar rétt til launa í veikindaforföllum. Það byggist annars vegar á því að lögbundinn réttur verkafólks og sjómanna á þessu sviði hefur verið túlkaður mjög þröngt og hins vegar á því að þessum hópum hefur ekki verið tryggður réttur í samræmi við þróun á sviði nútímalækninga. Þannig má sem dæmi nefna að starfsmenn ríkis og bæja fá greidd laun í fimmtán daga vegna fjarveru af völdum tæknifrjóvgunar og á hver starfsmaður rétt á slíkum greiðslum einu sinni. Sé litið til þessarar þróunar er langt frá því að verkafólk og sjómenn njóti slíks réttar og í raun hefur þróunin í heild leitt til þess að verkafólk og sjómenn hafa nú lakari rétt en almennt gerist og lakari rétt en ráða má af lagafyrirmælum. Þannig hafa hug
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem tryggja eiga rétt launafólks til greiðslu launa í forföllum að læknisráði án þess að gert sé að ófrávíkjanlegu skilyrði að viðkomandi sé óvinnufær. Þá er einnig lagt til í frumvarpinu að réttur heilbrigðra líffæragjafa verði tryggður sérstaklega. Enn hefur ekki reynt á rétt þessa hóps fyrir dómstólum en þegar hafa komið upp dæmi um að atvinnurekendur neiti að greiða heilbrigðum líffæragjöfum laun vegna fjarvista þeirra við líffæragjöf, enda þótt margir vinnuveitendur muni væntanlega kjósa að greiða starfsfólki sínu laun í slíkum tilvikum. Þess má geta að árið 1993 voru skráð fjögur tilvik líf
Eins og að framan greinir hafa opinberir starfsmenn fengið viðurkenndan rétt til greiðslu launa vegna forfalla vegna tæknifrjóvgunar sem eru að vissu leyti einnig aðgerðir sem ein
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í þessari grein er lagt til að réttur launafólks til launa í veikindaforföllum verði rýmkaður þannig að til sjúkdóma teljist hvers kyns aðgerðir, rannsóknir og önnur meðferð að læknisUm 2. gr.
Hér er lagt til að fellt verði brott skilyrði um að menn séu óvinnufærir, sbr. það sem segir í greinargerð. Í stað þess er lagt til að kveðið verði á um að forföll hafi verið óhjákvæmileg vegna veikindanna eða slyssins, en með því er tryggt að forföll viðkomandi séu í raun að læknisráði án þess að gert sé að skilyrði að viðkomandi teljist óvinnufær, sbr. þó undanteknUm 3. gr.
Hér er lögð til sú grundvallarbreyting á rétti sjómanna til launa í veikindaforföllum að ekki verði lengur gert að skilyrði að viðkomandi sé óvinnufær, enda hefur það skilyrði þrengt verulega rétt sjómanna þar sem þeir geta eðli málsins samkvæmt ekki leitað sér lækninga fyrr en að lokinni veiðiferð. Þannig hefur ósérhlífni sjómanna, sem reyna að vinna störf sín til loka veiðiferðar, þrátt fyrir óumdeilanleg veikindi, leitt til brottfalls réttar til veikindalauna. Þá er lagt til að ekki verði tiltekið í 5. mgr. að vottorð læknis varði „veikindi“ eða „slys“ og er sú breyting í samræmi við þá breytingu sem lögð er til á 36. gr. Bent skal á ákvæði 3. mgr. 8. gr. laganna sem veitir útgerðarmanni rétt til að kanna hvort sá sem vill ráða sig á skip sé haldinn sjúkdómi eða meiðslum sem geri hann ófæran til að gegna skipsstörfum og á 33. gr. laganna um skyldu skipverja til að gangast undir læknisrannsókn að kröfu skipstjóra.Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.