Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 711 – 361. mál.



Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um réttaraðstoð við ein staklinga sem leita nauðasamninga.

     1.      Hve margir einstaklingar hafa óskað eftir réttaraðstoð við að leita nauðasamninga samkvæmt lögum nr. 65/1996 frá 24. mars 1997 til desember 1997?
    Dómsmálaráðuneyti bárust umsóknir tíu einstaklinga um réttaraðstoð til að leita nauða samninga frá 24. mars 1997 til 31. desember 1997.

     2.      Hversu oft hefur réttaraðstoð við nauðasamningsumleitanir verið veitt á framangreindu tímabili?
    Réttaraðstoð var veitt átta sinnum á framangreindu tímabili, ein umsókn var afturkölluð og einni umsókn var hafnað.