Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 729 –408. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um samgöngur á Vestfjörðum.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
Hvernig verða tryggðar samgöngur milli norður- og suðursvæðis Vestfjarða?
Hvenær verður breytt reglum um snjómokstur á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðum og verður veittur styrkur til áætlunarflugs milli Ísafjarðar og Bíldudals/Patreksfjarðar?