Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 731 – 410. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um langtímaatvinnuleysi.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvaða skýring er á því að langtímaatvinnuleysi, þ.e. atvinnuleysi sem varir sex mánuði eða lengur, hefur meira en tvöfaldast frá árinu 1992 til 1997 og hver hefur verið þróun langtímaatvinnuleysis á þessum árum, skipt eftir kyni og aldri?
2. Hve margir voru atvinnulausir lengur en eitt ár á framangreindu tímabili, samtals og skipt eftir kyni og aldri?
3. Telur ráðherra ástæðu til að grípa til sérstakra aðgerða vegna langtímaatvinnuleysis?