Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 733 – 412. mál.



Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um aðgerðir vegna atvinnuleysis kvenna.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hverja telur ráðherra vera meginskýringuna á vaxandi atvinnuleysi kvenna frá árinu 1994 miðað við árin þar á undan?
     2.      Telur ráðherra réttlætanlegt að grípa til sértækra aðgerða vegna þess alvarlega atvinnuleysis sem nú er víða hjá konum eins og gert var árið 1993, en þá var veitt sérstakt 60 millj. kr. framlag til atvinnuátaks kvenna?