Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 740 – 419. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um sérleyfi til fólksflutninga.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Er það mat ráðherra að sérleyfi einstakra aðila til reglubundinna fólksflutninga sé eðlileg umgjörð samgöngumála?
2. Hver var ástæða þess að ráðherra ákvað á síðasta ári að framlengja um önnur fimm ár sérleyfi til fólksflutninga með langferðabifreiðum?
3. Hverjir eru með sérleyfi til fólksflutninga og á hvaða svæðum?
4. Þegar ráðherra ákvað á sl. ári að framlengja sérleyfi þeirra sem haft hafa leyfi til reglubundinna fólksflutninga um fimm ár voru þá sérleyfi allra sem það höfðu fyrir framlengd?
5. Aflar ráðherra upplýsinga um vilja sveitarstjórna og neytenda áður en sérleyfi á tilteknum leiðum eru endurnýjuð?
Skriflegt svar óskast.