Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 742 – 231. mál.



Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur um búsetumál fatlaðra.

    Með lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, voru verkefni svæðisstjórna í málefnum fatlaðra greind í tvennt, annars vegar eftirlit, samræmingu og réttindagæslu fatlaðra sem svæðisráð málefna fatlaðra annast og hins vegar framkvæmd þjónustu og rekstur sem svæðis skrifstofur málefna fatlaðra annast. Í þeim svörum sem hér fara á eftir er vísað til svæðis skrifstofa málefna fatlaðra þar sem efni fyrirspurnarinnar tekur til starfsemi þeirra, en leitað var til þeirra um svör við fyrirspurninni. Allar fjárhæðir eru á verðlagi ársins 1997.

     1.      Hversu margir fatlaðir einstaklingar fengu húsnæði á vegum svæðisstjórna um málefni fatlaðra á árinu 1996 og samkvæmt áætlun fyrir árið 1997, skipt eftir umdæmum svæðisstjórna?

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra 1996 1997
Reykjavík
6 5
Reykjanesi
7 6
Vesturlandi
2
Vestfjörðum
1
Norðurlandi vestra
4 1
Austurlandi
6 3
Suðurlandi
3 2

     2.      Hversu margir fatlaðir einstaklingar eru á biðlista eftir húsnæði, skipt eftir umdæmum svæðisstjórna?


Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
Biðlisti
31. desember 1997
Ný úrræði 1998
Reykjavík
170 17
Reykjanesi
137 17
Vesturlandi
17 5
Vestfjörðum
8
Norðurlandi vestra
17 7
Austurlandi
3
Suðurlandi
10

    Af þeim 170 einstaklingum sem eru á biðlista hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík nýtur um það bil þriðjungur skammtímavistunar og dagþjónustu og 15 búa á öðr um stofnunum, t.d. geðsjúkrahúsum.
    Af þeim 137 einstaklingum sem eru á biðlista hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi nýtur 61 einstaklingur þjónustu skammtímavistunar og/eða dagþjónustu og 30 búa á stofnunum eða sjúkrahúsum.
    Í fjárlögum ársins 1998 er fjármagn til að reka fjögur ný sambýli og dreifast þau þannig að tvö verða á Reykjanesi, eitt á Vesturlandi og eitt á Norðurlandi vestra. Þá munu þrjú sam býli verða opnuð í Reykavík í sumar og heimili fyrir börn á Reykjanesi næsta haust, en fjár magn til heimilanna fékkst í fjárlögum 1997. Samtals munu búa 46 einstaklingar á þessum heimilum.

     3.      Hver má ætla að kostnaðurinn við að leysa húsnæðisvanda þessa hóps verði, skipt eftir umdæmum svæðisstjórna?
    Á biðlistum svæðisskrifstofa málefna fatlaðra voru 362 einstaklingar í árslok 1997. Með þeim átta nýju heimilum sem til verða á þessu ári mun fækka á þeim um 46 nöfn. Að teknu tilliti til þess má áætla að það þurfi 490–500 millj. kr. rekstrarfjárveitingu til að leysa hús næðisvanda þeirra 316 einstaklinga sem þá eru á biðlistum á árinu 1998. Áætluð skipting fjárhæðarinnar er eftirfarandi:

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Millj. kr.
Reykjavík
227
Reykjanesi
198
Vesturlandi
13
Vestfjörðum
7
Norðurlandi vestra
19
Austurlandi
7
Suðurlandi
20

    Gera má ráð fyrir að reisa þurfi sambýli fyrir 55% þess hóps sem er á biðlistunum, eða 170–180 einstaklinga, en 45%, eða um 140 einstaklingar, muni geta nýtt sér félagslegar eða verndaðar íbúðir. Stofnkostnaður þessa húsnæðis er áætlaður 1.200–1.400 millj. kr. og er þá miðað við að jöfnum höndum verði um kaup og nýbyggingar að ræða á húsnæði fyrir sam býli og að Framkvæmdasjóður fatlaðra leggi til 10% framlag framkvæmdaraðila vegna bygg ingar og kaupa félagslegra íbúða.

     4.      Hversu margir fatlaðir einstaklingar voru í dagvistun á árinu 1996 og samkvæmt áætlun fyrir árið 1997, skipt eftir umdæmum svæðisstjórna?

Fjöldi

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra 1996 1997
Reykjavík
203 212
Reykjanesi
43 42
Vesturlandi
8 8
Vestfjörðum
10 9
Norðurlandi vestra
30 39
Austurlandi
14 13

    Á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi er ekki rekin sérstök dagvistar stofnun. Verndaðir vinnustaðir eru á Selfossi og í Vestmannaeyjum og eru einstaklingar í dagvistun á þeim stöðum.

     5.      Hversu margir fatlaðir einstaklingar eru á biðlistum eftir dagvistun, skipt á umdæmi svæðisstjórna?

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

Fjöldi

Reykjavík
47
Reykjanesi
63
Vesturlandi
3
Vestfjörðum
3
Austurlandi
3

     6.      Hver er heildarkostnaður af rekstri dagvistunar fyrir fatlaða einstaklinga árið 1996 og samkvæmt áætlun fyrir árið 1997, skipt eftir umdæmum svæðisstjórna?


Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

1996
millj. kr.

1997
millj. kr.

Reykjavík
172 182
Reykjanesi
25 28
Vesturlandi
6 7
Vestfjörðum
7 8
Norðurlandi vestra
10 15
Austurlandi
4 5

     7.      Hver má ætla að heildarkostnaður yrði ef þörfinni fyrir dagvistun fatlaðra einstaklinga yrði mætt að fullu, skipt eftir umdæmum svæðisstjórna?

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

Millj. kr.

Reykjavík
36
Reykjanesi
48
Vesturlandi
3
Vestfjörðum
3
Austurlandi
2

    Í töflunni er áætlaður árlegur rekstrarkostnaður til að leysa þörf fyrir dagvistun þeirra ein staklinga sem eru á biðlistum hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Í fjárlögum ársins 1998 eru 15 millj. kr. ætlaðar til að efla dagþjónustu í Reykjavík.
    Gera má ráð fyrir að koma þurfi á fót fjórum nýjum dagvistarstofnunum til að tæma bið listana og er stofnkostnaður þess húsnæðis áætlaður 220–240 millj. kr.

     8.      Hversu margir fatlaðir einstaklingar stunda vinnu á vinnustöðum í umsjón svæðisstjórna, skipt eftir umdæmum?

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

Fjöldi

Reykjanesi
53
Vesturlandi
22
Vestfjörðum
3
Norðurlandi vestra
13
Austurlandi
10
Suðurlandi
43

    Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík rekur ekki verndaðan vinnustað. Á hinn bóginn sækja um 150 fatlaðir einstaklingar vinnu á verndaða vinnustaði sem reknir eru á vegum félaga fatlaðra, svo sem Blindrafélagsins, Sambands íslenskra berkla- og brjósthols sjúklinga, Styrktarfélags vangefinna og Öryrkjabandalags Íslands.

     9.      Hversu margir fatlaðir einstaklingar eru á biðlistum eftir vinnu, skipt á umdæmi svæðisstjórna?

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

Fjöldi

Reykjavík
107
Reykjanesi
46
Vesturlandi
5
Vestfjörðum
3
Norðurlandi vestra
4
Austurlandi
3
Suðurlandi
4