Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 745 – 422. mál.



Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um málefni Hanes-hjónanna.

Frá Sigríði Jóhannesdóttur.



1.      Getur ráðherra upplýst hvert er erindi þeirra fulltrúa sem samkvæmt fréttum er von á frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu viðvíkjandi máli Hanes-hjónanna og á hvern hátt það tengist þeim?
2.      Geta íslensk stjórnvöld á einhvern hátt stuðlað að því að hjónin fái aftur vegabréf sín í ljósi þess að þau hafa ítrekað boðist til að mæta fyrir rétti í Bandaríkjunum án þess að fá nokkrar undirtektir?
3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að þeim verði veitt landvist hér á landi til frambúðar af mannúðarástæðum jafnvel þótt þau hafi verið svipt vegabréfum sínum?