Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 753 – 428. mál.



Tillaga til þingsályktunar



um könnun á þrávirkum lífrænum efnum í lífríki Íslands.

Flm.: Össur Skarphéðinsson, Kristján Pálsson,


Gísli S. Einarsson Árni M. Mathiesen.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta framkvæma athugun á dreifingu og styrk þrávirkra lífrænna efna í lífríki hafsins við Ísland.
    Athugunin feli m.a. í sér eftirfarandi:
     1.      Mælingar á magni þessara efna í helstu tegundum nytjafiska á miðum við Ísland og gerð vöktunaráætlunar sem tryggir að jafnan séu til reiðu áreiðanlegar upplýsingar um út breiðslu þeirra í íslenskum nytjafiskum.
     2.      Sérstakar mælingar á útbreiðslu efnanna meðal sjávarspendýra við Ísland.
     3.      Skipulegar rannsóknir á því hvernig þrávirk lífræn efni flytjast upp fæðukeðjuna við Ísland, með sérstakri áherslu á rándýr á efri stigum hennar.

Greinargerð.


Uppsöfnun á norðurslóðum.
    Ein af mestu hættum sem munu í framtíðinni ógna lífríki norðurslóða, þar með töldum manninum, er mengun af völdum þrávirkra lífrænna efna. Þekktust þeirra eru klórkolefnis sambönd á borð við skordýraeitrið DDT og PCB-efnahópinn sem falla bæði undir þrávirk lífræn efni þótt þau séu ólík að uppbyggingu. Vel þekktar afleiðingar af uppsöfnun þessara efna í mönnum og dýrum eru t.d. krabbamein, ófrjósemi, óeðlilegur kynþroski, ofnæmi og alvarleg bilun ónæmiskerfisins sem leiðir til tíðra sjúkdóma.
    Hin köldu norðurhöf verka sem eins konar kuldagildra fyrir þrávirk lífræn efni. Ástæð unnar er að leita í eðliseiginleikum efnanna. Þau gufa upp í heitu loftslagi, berast langar leið ir með háloftum, en þegar þau koma í kaldara loftslag þéttast þau í vökva og falla niður á yfirborð. Þau falla þá ýmist beint í höfin eða skolast þangað með regni ofan af landi. Þetta ferli leiðir til þess að smám saman „sogast“ þessi efni frá uppruna sínum til heimskautanna. Þegar þau eru einu sinni komin til norðurhafanna losna þau ekki þaðan.

Stöðugleiki og þrávirkni.
    Þetta er ástæðan fyrir því að í framtíðinni eru það einkum norðurslóðirnar sem verða í hættu gagnvart skaðlegum áhrifum efnanna. Eins og síðar er rakið einskorðast þau ekki við líf og heilsu íbúa norðursins heldur er líklegt að áhrifin komi fram miklu fyrr í efnahag þjóð anna sem byggja norðurhjarann.
    Efnin eru afar stöðug. Það þýðir að þau brotna ekki niður fyrir tilverknað vatns, vinda, hitabreytinga, ensíma í mögum dýra eða annarra rofafla sem eru að verki í hringrás náttúr unnar. Þau geta því komið fram eiturvirkni sinni fjölmörgum sinnum yfir mjög langan tíma, jafnvel um aldir. Þótt þrávirk lífræn efni sé að sönnu aðeins að finna í örlitlu magni í höfun um leiðir stöðugleiki þeirra til að þau safnast upp í fæðukeðjunni þar sem styrkur þeirra margfaldast með hverju þrepi.
    Í einföldu máli má skýra uppsöfnunina þannig: Smádýr og örþörungar taka upp þrávirk lífræn efni úr sjónum. Þau verða sjálf fórnarlömb örsmárra krabbadýra. Þrávirku lífrænu efnin brotna ekki niður við meltinguna heldur verða eftir í fituvefjum rándýrsins. Þegar það endar loks ævi sína er að finna í fitunni mestallt það magn sem var að finna í líkömum allra dýranna sem rándýrið lagði sér til munns á lífsferli sínum. Þessi saga endurtekur sig. Örsmá krabbadýr eru étin af stærri krabbadýrum sem enn stærri dýr leggja sér síðan til munns. Þannig margfaldast magn hinna stöðugu þrávirku efna í hverju þrepi fæðukeðjunnar. Það verður því meira sem dýrið er langlífara.
    Þegar komið er upp í þorskinn á norðurslóðum mælist styrkur efnanna gjarnan 25 milljón sinnum meiri en í hafinu umhverfis. Selir éta þorskinn og sumar tegundir hvala éta selina, svo ekki sé minnst á hvítabirni sem lifa aðallega á selum. Í rándýrum á borð við hvali, seli og hvítabirni getur styrkur efnanna orðið 50 þúsund milljón sinnum meiri en í sjónum um hverfis.

Íbúar norðurslóða.
    Þrávirku efnin safnast fyrst og fremst upp í fituvefjum eins og áður sagði. Einkenni flestra spendýra norðursins er gríðaleg forðasöfnun í formi fitu. Það er skýringin á þeirri þverstæðu að engin spendýr hafa mælst með jafngríðarlegt magn þrávirkra lífrænna efna og hvítabirnir norðurheimskautsins sem lifa þó á slóðum þar sem engar uppsprettur slíkra efna er að finna.
    Íbúar norðurslóða eiga það sameiginlegt með hinum stóru spendýrum norðursins að þeir tróna efst á toppi fæðukeðjunnar. Sumir þeirra, eins og Inúítarnir, hafa frá fornu lifað einkum á sel og hval. Þeir eru því staddir á svipuðu þrepi í fæðukeðjunni og hvítabirnirnir. Það gefur vitaskuld tilefni til að ætla að í líkömum þeirra sé að finna mikið magn þrávirkra lífrænna efna. Því miður hafa rannsóknir staðfest það. Í mjólk Inúítamæðra nyrst í Kanada hefur mælst meira af þeim en hjá nokkrum öðrum konum og áttfalt meira en í öðrum kanadískum konum.
    Færeyingar leggja sér enn grindhval til munns. Hann er talin orsök þess að í mjólk fær eyskra mæðra hefur mælst næsthæsta magn PCB sem mælst hefur í brjóstamjólk.

Óglögg hættumörk.
    Íslendingar leggja sér að sönnu ekki mikinn hval eða sel til munns. Við borðum hins vegar meira af fiski en flestar aðrar þjóðir. Mælingar benda til að sá fiskur sé með mun minna magn af þrávirkum efnum en er að finna í sömu tegundum á hafsvæðum annarra Evrópu þjóða. Magnið sem við neytum veldur því eigi að síður að í íslenskri móðurmjólk er að finna þriðjungi meira af þrávirkum lífrænum efnum en víðast annars staðar. Það er langt undir því sem talin eru hættumörk, en felur í sér alvarlega viðvörun um framtíðina.
    Stjórnvöld víðs vegar um heim hafa sett ákveðin hættumörk. Þau hafa í mörgum tilvikum einkum miðast við dramatískar afleiðingar þrávirkra efna, á borð við krabbamein, ónæmis bilanir eða dauða. Æ sterkari vísbendingar hafa þó komið fram á síðustu árum um að þrávirk lífræn efni kunni að hafa skaðleg áhrif við margfalt minni styrk en áður var ætlað. Mæður sem borðuðu fisk mengaðan PCB úr Vötnunum miklu í Michigan í Bandaríkjunum ólu börn sem við fjögurra ára aldur höfðu minni greind, einbeitingu og hreyfiþroska en önnur börn. Í þessari rannsókn var athyglisvert að ekki fundust tengsl á milli magns þrávirku efnanna og greindarþroska barnanna. Vísindamenn ályktuðu því að áhrifin hefðu orðið á fósturstigi og líklega þyrfti styrkurinn að ná tilteknum þröskuldi til að hafa skaðleg áhrif.
    Í þessu samhengi er vert að hafa í huga ákveðnar breytingar sem verða við meðgöngu. Þrávirku efnin safnast upp í fituvef og þegar fóstur dýranna á norðurhjaranum þroskast kem ur að því að móðirin tekur að ganga á eigin fituforða. Við það losna þrávirku efnin út í blóðið. Styrkur þeirra getur þá margfaldast. Þrávirku efnin komast yfir hindranir sem skilja að blóð móður og fósturs í spendýrum. Þegar móðir hefur fætt afkvæmið gengur hún enn frekar á fituforðann þegar hún framleiðir mjólk handa því. Við það losnar enn meira af þrávirkum lífrænum efnum. Talsvert af þeim fer að lokum með móðurmjólkinni yfir í afkvæmið. Þetta er ástæðan fyrir því að tiltölulega hátt magn þrávirkra efna hefur mælst á æskuskeiði margra spendýra norðursins, svo sem hjá kópum og húnum, langhæst í gömlum karldýrum sem aldrei geta losað sig við efnin en minna í kvendýrum sem koma þeim frá sér með mjólkinni.
    Menn hafa því spurt: Hvernig er hægt að finna hver eru hin raunverulegu hættumörk? Í hvaða magni valda tiltekin þrávirk efni ekki skerðingu á greind og hreyfiþroska? Við hvaða styrk byrja þau að gera það? Fyrir þremur árum birtist grein eftir bandaríska vísindakonu, Susan Porterfield, í fræðiritinu Environmental Health Perspectives. Þar rökstyður hún þá kenningu að í mjög litlu magni, langt undir áætluðum hættumörkum, geti þrávirk efni á borð við PCB og díoxín leitt til þess að þroski barna skerðist. Porterfield nefndi sérstaklega ein beitni, námsgetu og ofvirkni barna.
    Umræða um atriði af þessu tagi í tengslum við þrávirk lífræn efni eykst stöðugt í Banda ríkjunum. Þar beinist hún ekki síst að rannsóknum vísindamanna á borð við Porterfield sem hafa sýnt að margfalt minna magn efnanna en áður var talið er líklegt til að hafa neikvæð áhrif á heilsu manna. Miðað við þá þekkingu sem fyrir liggur og mælingar á magni PCB í blóði bandarískra barna hafa fræðimenn komist að þeirri niðurstöðu að líklegt sé að fimm af hundraði barna þar í landi þjáist af greindarskorti sem beinlínis megi rekja til áhrifa meng unar af völdum efnanna.

Umhverfisvöktun og fiskmarkaðir.
    Enginn vafi leikur á því að þessi umræða mun aukast á næstu árum og breiðast út til ann arra heimshluta. Flest bendir til að orsakanna megi leita í neyslu á sjávarfangi, sbr. íslensku móðurmjólkina. Því er sennilegt að sjónir manna muni fyrr en seinna beinast að fiski sem veiddur er í norðurhöfum. Líklegt er að þessi þróun hafi neikvæð áhrif á möguleika íslenskra fiskafurða á erlendum mörkuðum þegar fram í sækir.
    Íslendingar geta aðeins brugðist við þessu með tvennu móti: Í fyrsta lagi með því að herða róðurinn gegn notkun þrávirkra lífrænna efna í heiminum. Í öðru lagi með því að hefja um fangsmiklar mælingar á fiski við Ísland til að geta sýnt fram á hreinleika hans. Það mun reynast drjúgt haldreipi þegar í harðbakkann slær — sem örugglega verður fyrr en menn eiga von á.
    Þær takmörkuðu mælingar sem hafa verið gerðar á íslenskum fiski benda til að magn þessara efna sér margfalt minna í fiski hér við land en víða erlendis. Þetta er mikilvæg stað reynd sem vissulega verður hægt að nota langa hríð til að verja markaðsstöðu fiskfangs frá Íslandi, ekki síst í því ljósi er mikilvægt að fyrir liggi sem nákvæmastar mælingar á öllum tegundum nytjafiska við Ísland og frá öllum miðum umhverfis landið.
    Umhverfisvöktun af þessu tagi mun reynast mikilvæg til að slá á ótta markaða sem óhjá kvæmilega mun í framtíðinni vakna vegna umræðunnar um tengsl neyslu sjávarfangs við upp söfnun þrávirkra lífrænna í líkömum manna. Þess vegna er í tillögunni lögð sérstök áhersla á reglulegar mælingar á nytjafiskum við Ísland. Þær munu í senn styðja aðgerðir heima fyrir og í alþjóðlegu starfi þar sem íslensk stjórnvöld hafa sýnt lofsvert frumkvæði í baráttunni fyrir takmörkun þrávirkra lífrænna efna. Sömuleiðis árétta flutningsmenn að mælingar af þessu tagi geti haft ómetanlegt gildi fyrir íslenskan sjávarútveg, við markaðssetningu í fram tíðinni. Hiklaust má segja að niðurstöður þeirra kunni að verða gulls ígildi fyrir sölu ís lenskra sjávarafurða í framtíðinni.

Aðrar rannsóknir.
    Hér á landi hafa farið fram ýmsar rannsóknir á útbreiðslu og magni þrávirkra lífrænna efna í lífríki við Ísland, bæði af hálfu Íslendinga og í nokkrum tilvikum erlendra manna. Ís lendingar eru ásamt sjö öðrum þjóðum sem tengjast norðurhjaranum þátttakendur í alþjóð legu vöktunarverkefni á norðurslóðum. Í tengslum við það hefur Rannsóknastofnun fiskiðn aðarins mælt efnin í nokkrum tegundum fiska og einnig Rannsóknastofa Háskólans í lyfja fræði, en niðurstöður rannsókna hennar benda til að miklu meira sé af klórkolefnissambönd um í dýrum ofarlega í fæðukeðjunni en menn áttu von á.
    Vöktunaráætlunin sem Íslendingar hafa staðið fyrir undanfarin ár í tengslum við eigið líf ríki hefur verið næsta yfirgripsmikil varðandi þungmálma og geislavirk efni. Varðandi þrá virk lífræn efni hefur hún tekið fyrst og fremst til aðeins eins efnahóps, þ.e. PCB. Auk þess eru til allmargar mælingar á DDT en einvörðungu takmarkaðar mælingar á Dioxínum og Toxafeni, svo nokkuð sé nefnt.
    Eins og kemur fram í fylgiskjali hefur þannig mælst veruleg uppsöfnun PCB í æðarfugli sem veiddur var á Álftanesi. Magnið er svo mikið að við vissar aðstæður um varptímann gæti það valdið „bráðum eiturhrifum“. Þetta eru ótrúlegar upplýsingar sem reka væntanlega marga í rogastans.
    Rannsóknir á íslenskum fálkum gáfu til kynna að í þeim væri magn PCB og DDT „jafnvel meira hér á landi en fundist hefur í sambærilegum tegundum annars staðar“ (sjá fylgiskjal). Rannsóknir á sel benda einnig til að „mengun af völdum þessara efna hér við land gæti verið mun meiri en ætla mætti af legu landsins og notkun efnanna hérlendis“ (sjá fylgiskjal). Rann sóknir á teistu, sem nú standa yfir, gefa hið sama til kynna. Öll þessi dýr eru mjög ofarlega í fæðukeðjunni þar sem uppsöfnunar þrávirkra lífrænna efna er að vænta, flytjist þau á annað borð inn á hafsvæðin við Ísland. Góðu heilli sýna mælingar líka að enn gætir efnanna í mjög litlum mæli í lægstu stigum fæðukeðjunnar.
    Þessar niðurstöður benda eindregið til þess að í efri stigum fæðukeðjunnar við Ísland séu þrávirk lífræn efni í mun meira magni en menn töldu áður. Nauðsynlegt er að ganga úr skugga um það. Þess vegna er lagt til að skipuleg úttekt verði gerð á útbreiðslu og flutningi efnanna um lífríkið sem tengist Íslandi.
    Erlendar rannsóknir hníga sterklega að því að hvergi á norðurslóðum sé að finna jafnmik ið magn af þrávirkum lífrænum efnum og í sjávarspendýrum. Það vekur hins vegar sérstaka athygli að hér á landi hafa engar niðurstöður verið birtar um magn efnanna í sjávarspendýr um við Ísland. Þess vegna er lagt til að ráðist verði í sérstak átak í mælingum á þeim þar sem líklegt er að niðurstaðan gefi góðar vísbendingar um hversu menguð hafsvæðin umhverfis Ísland eru af þrávirkum lífrænum efnum.


Fylgiskjal.


Kristín Ólafsdóttir,
Rannsóknastofu Háskólans í Lyfjafræði:


Uppsöfnun þrávirkra lífrænna efna í fuglum og mönnum.



1. Inngangur.
    Lengi hefur mönnum verið ljóst að mengun af völdum ýmissa þrávirkra lífrænna efna er meðal alvarlegustu umhverfisvandamála jarðarinnar. Skaðsemi efnanna byggist aðallega á stöðugleika þeirra í lífverum og í náttúrunni.
    Efni þessi skipta hundruðum en eru flest skyld að gerð. Best þekktu mengunarefnin eru ýmis skordýraeitur og önnur varnarefni eins og DDT (díklór-dífenýl-tríklóretan), hexaklór sýklóhexan (HCH, lindan) og hexaklórbensen(HCB). Efni af öðrum uppruna eru PCB-efni (pólíklórbífenýlsambönd) en þau voru aðallega notuð til einangrunar í stórum rafkerfum. Klórkolefnissambönd þessi eru flest afar stöðug í náttúrunni og þau safnast fyrir í fituvef dýra, einkum þeirra sem efst eru í fæðukeðjunni. Þau valda yfirleitt ekki bráðri eitrun (krampi, sem getur leitt til dauða) en hinn langi viðverutími í líkama dýra gerir áhrif þeirra á ónæmiskerfið, frjósemi og krabbameinsmyndun að áhyggjuefni (1). DDT er þekktast þess ara efna og áhrif þess á frjósemi fugla varð þess valdandi að athygli manna beindist fyrst að skaðsemi klórkolefnissambanda í náttúrunni (2).
    Lítið hefur verið notað af varnarefnum á Íslandi miðað við víða annars staðar, en gamma-HCH (lindan) var þó talsvert notað við böðun á sauðfé fram á síðustu ár. Ljóst er hins vegar að klórkolefnissambönd hafa víða fundist langt frá notkunarstað, meðal annars á heimskauta svæðunum (3,4) og virðast efnin því berast langar leiðir með lofti og legi. Til skamms tíma var lítið vitað um útbreiðslu klórkolefnissambanda á Íslandi. Nokkrar rannsóknir fóru þó fram í Rannsóknastofu í lyfjafræði á árunum 1970–85 (5–9) á smjöri, silungi, laxaseiðum svo og nautafitu, hreindýra- og kindafitu sem leiddu í ljós litla, en mælanlega, aðkomna, loft borna mengun af völdum klórkolefnissambanda svo og nokkra staðbundna mengun. Magn DDT og PCB í lofti og nokkrum íslenskum dýrategundum þótti fremur lítið miðað við nálæg lönd 1974 (10). Nýrri rannsóknir á selspiki (11) þykja benda til að mengun af völdum þess ara efna hér við land gæti verið mun meiri en ætla mætti af legu landsins og notkun efnanna hérlendis.

2. Íslandsfálki (Falco rusticolous).
    Í sömu átt benda rannsóknir á íslenskum fálkum sem nýlega er lokið (12). Í ljós kom að magn PCB- og DDT-efna var jafnvel meira hér á landi en fundist hefur í sambærilegum teg undum annars staðar, heildarmagn PCB-efna var á bilinu 0,1–232 mg/kg í brjóstvöðva. Beint samband fannst á milli magns efnanna í fálkunum og aldurs fuglanna. Einnig var ljóst að efn in berast saman í fálka þar sem beint samband var á milli magns beggja efna í öllum þeim 59 fuglum sem rannsakaðir voru. Því er ólíklegt að um staðbundna mengun sé að ræða og nær víst að efnin berist í íslenska fæðukeðju erlendis frá. Þetta gæti gerst annaðhvort beint með því að fálkar éta fugla sem fá í sig eiturefnin á erlendum vetrarstöðvum eða óbeint við að efnin berist til landsins með loft- eða hafstraumum og mengi þannig íslenskar lífverur. Er því mikilvægt að ákvarða hvernig þessi efni berast í fálkann til að unnt sé að rannsaka hvern ig og hvar íslensk náttúra hefur mengast. Rannsókn á fuglum sem fálkinn lifir á, sem nú stendur yfir, verður fyrsta skrefið í þessa átt (13).

3. Æðarfugl (Somateria mollissima).
    Rannsókn á æðarfugli, sem veiddur var á Álftanesi 1993, leiddi í ljós þónokkra mengun klórkolefnissambanda í æðarfuglinum (14) eða um 10–100 sinnum minna en fannst í fálka, enda er æðarfuglinn mun neðar í fæðukeðjunni en fálkinn. Mikil árstíðarsveifla sást á magni efnanna, sem endurspeglaði tilfærslu efnanna frá fituvef til annarra líffæra yfir varptímann. Á þessum tíma er hætt við að styrkur efnanna í blóði fuglanna geti hækkað nægilega til að valda bráðum eiturhrifum.
    Nokkru minna magn klórkolefnissambanda hefur fundist í æðarfugli frá Svalbarða og um tífalt minna magn í sömu tegund frá Kanada. Þar sem æðarfuglinn er staðbundinn hér við land og lifir að mestu á skeldýrum í fjörum benda niðurstöður þessar því til að strendur Ís lands séu eitthvað mengaðar af þrávirkum lífrænum efnum.

4. Rjúpa (Lagopus mutus).
    Magn klórkolefnissambanda var kannað í nokkrum rjúpum víðs vegar að af landinu og reyndist magnið afar lítið, t.d. var heildarmagn PCB-efna um 0,0004 mg/kg í brjóstvöðva (13). Virðist magn efnanna vera heldur minna en fannst í sömu tegund í Kanada (15). Þar sem rjúpan er aðalfæða fálkans virðist ljóst að önnur fæða hans hljóti að vera mjög menguð. Rjúpan lifir einkum á fræjum og lyngi og má því ætla að fyrstu stig fæðukeðjunnar á landi (terrestrial foodchain) séu enn nokkuð hrein hvað varðar klórkolefnissambönd.

5. Móðurmjólk.
    Klórkolefnissambönd hafa langan helmingunartíma og brotna lítið niður í flestum lífverum. Kvendýr spendýra geta losnað við klórkolefnissambönd með móðurmjólk, en í karldýr um eykst þéttni þeirra með aldri (11). Erlendis hafa rannsóknir á mönnum einkum beinst að tilvist klórkolefnissambanda í móðurmjólk þar sem minni fæðingarþyngd og óeðlilegur þroski nýbura hefur verið rakinn til PCB-efna (16). Við frumrannsókn á tilvist klórkolefnis sambanda í íslenskri móðurmjólk (Tafla 1) kom í ljós að magn algengustu klórkolefnissam banda er svipað í íslenskri móðurmjólk og í móðurmjólk annars staðar á Norðurlöndum (17–19). Í Færeyjum (20) mældist magn PCB-efna í móðurmjólk nokkuð meira en hér og var það rakið til hvalmetis í fæðu mæðranna.
    PCB-mengun er hlutfallslega meiri hér á landi en DDT-mengun þar sem hlutfall PCB/DDT í íslenskri móðurmjólk er u.þ.b. 2,5. Þetta hlutfall er svipað því sem fundist hefur í Sví þjóð (19) og Þýskalandi (21), en víðast annars staðar er þetta hlutfall nær einum og jafnvel lægra eins og í Frakklandi (22).
    Þar sem rannsóknin náði einungis til 22 mæðra má ætla að nokkuð skorti á að hún veiti fullnægjandi upplýsingar um magn þrásetinna klórkolefnissambanda í íslenskri móðurmjólk. Nú er hafin nokkuð umfangsmeiri rannsókn sem nær til 40 kvenna. Könnuð verða áhrif bú setu og neyslu sjávarfangs á magn efnanna í blóði (13). Afar ólíklegt verður þó að teljast að þær aðstæður finnist á Íslandi að magn þessara mengunarefna í móðurmjólk fari yfir hugsan leg hættumörk fyrir ungbörn (um 1.000 ng/g mjólkur (16)).

    Heimildir sem vísað er til með tölum í svigum er hægt að finna á heimasíðu Hollustu verndar.