Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 754 – 429. mál.
Beiðni um skýrslu
frá heilbrigðisráðherra um tíðni og eðli barnaslysa tímabilið 1990–96.
Frá Össuri Skarphéðinssyni, Margréti Frímannsdóttur, Kristínu Halldórsdóttur,
Ástu R. Jóhannesdóttur, Svavari Gestssyni, Guðnýju Guðbjörnsdóttur,
Rannveigu Guðmundsdóttur, Guðmundi Árna Stefánssyni,
Steingrími J. Sigfússyni, Ástu B. Þorsteinsdóttur og Gísla S. Einarssyni.
Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að heilbrigðisráðherra flytji Alþingi skýrslu um tíðni og eðli barnaslysa tímabilið 1990–96. Í skýrslunni komi m.a. fram upplýsingar um eftirfarandi atriði:
1. Heimaslys.
1. Hver var árleg tíðni heimaslysa hjá 0–4 ára, 5–9 ára, 10–14 ára og 15–18 ára börnum á tímabilinu? Hvernig er skiptingin eftir kynjum
a. í heild,
b. innan aldursbila?
2. Hvernig skiptast þau samtals eftir slysaflokkum (t.d. brunaslys, köfnunarslys, klemmuslys, augnáverkar, höfuðhögg, eitranir, önnur slys)? Óskað er eftir að einnig verði til
3. Hvar verða slysin helst innan heimilisins?
4. Hversu mörg barnanna þurfti að leggja inn á sjúkrahús vegna heimaslysa og hve lengi samtals?
5. Hve mörg þeirra eru talin hafa hlotið varanleg meiðsl eða örkuml?
6. Hvernig er tíðni heimaslysa íslenskra barna á fyrrgreindum aldursbilum og eftir kynjum í samanburði við aðrar þjóðir á Norðurlöndum, t.d. Norðmenn eða Svía?
7. Í umsjón hvers voru þau börn sem slösuðust á aldrinum 0–4 ára?
8. Hve mörg börn slösuðust í vörslu dagmæðra? Hvers konar áverka hlutu þau og hversu alvarlegir voru þeir?
2. Skólaslys.
1. Hver var árleg tíðni skólaslysa hjá 0–4 ára börnum (leikskólar), 5–9 ára, 10–14 ára og 15–18 ára á tímabilinu? Hvernig er skiptingin eftir kynjum
a. í heild,
b. innan aldursbila?
2. Hvernig skiptast þau samtals eftir slysaflokkum? Óskað er eftir að einnig verði tilgreind skipting fyrir sérhvern aldursflokkanna.
3. Hvar verða slysin helst á vettvangi skólans?
4. Hversu mörg barnanna þurfti að leggja inn á sjúkrahús vegna skólaslysa og hve lengi samtals?
5. Hve mörg þeirra eru talin hafa hlotið varanleg meiðsl eða örkuml?
6. Hvernig er tíðni skólaslysa íslenskra barna á fyrrgreindum aldursbilum og eftir kynjum í samanburði við aðrar þjóðir á Norðurlöndum, t.d. Norðmenn eða Svía?
(Spurt er sérstaklega um slys við leikfimikennslu á vegum skóla í næsta lið.)
3. Íþróttaslys.
1. Hver var árleg tíðni íþróttaslysa á tímabilinu?
2. Hvernig skiptast þau eftir íþróttaflokkum?
3. Hvers konar áverkar einkenna einstaka íþróttaflokka? Óskað er eftir eins nákvæmri sundurgreiningu og gögn leyfa.
4. Hvernig skiptast þau samtals eftir eðli áverka?
5. Hve stór hluti slysanna varð í leikfimikennslu á vegum skóla eða annarra aðila?
6. Hvar verða slysin einkum á íþróttasvæðum (þar með talin íþróttahús) og við hvers konar íþróttaiðkanir?
7. Hversu mörg barnanna þurfti að leggja inn á sjúkrahús vegna íþróttaslysa og hve lengi samtals?
8. Hve mörg þeirra eru talin hafa hlotið varanleg meiðsl eða örkuml?
9. Hvernig er tíðni íþróttaslysa íslenskra barna á fyrrgreindum aldursbilum og eftir kynjum í samanburði við aðrar þjóðir á Norðurlöndum, t.d. Norðmenn eða Svía?
Óskað er eftir sundurgreindum svörum fyrir börn 5–9 ára, 10–14 ára og 15–18 ára. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvernig tíðnin skiptist eftir kynjum (a) í heild, og (b) innan aldursbila.
4. Umferðarslys.
1. Hver var árleg tíðni umferðarslysa hjá 0–4 ára, 5–9 ára, 10–14 ára og 15–18 ára börnum á tímabilinu?
2. Hvernig skiptast þau samtals eftir slysaflokkum (t.d. hjólreiðaslys, árekstur, ákeyrsla o.s.frv.)? Óskað er eftir að einnig verði tilgreind skipting sérhvers aldursflokks fyrir sig.
3. Hve mörg börn slösuðust vegna þess að sérstökum öryggisbúnaði, svo sem hjálmum og sætisbeltum, var áfátt eða hann ekki notaður?
4. Hversu mörg barnanna þurfti að leggja inn á sjúkrahús vegna umferðarslysa og hve lengi samtals?
5. Hve mörg þeirra eru talin hafa hlotið varanleg meiðsl eða örkuml?
6. Hvernig er tíðni umferðarslysa íslenskra barna á fyrrgreindum aldursbilum og eftir kynjum í samanburði við aðrar þjóðir á Norðurlöndum, t.d. Norðmenn eða Svía?
5. Drukknunarslys.
1. Hver var árleg tíðni drukknunarslysa hjá 0–4 ára, 5–9 ára, 10–14 ára og 15–18 ára börnum á tímabilinu? Einnig er óskað skiptingar eftir kynjum
a. í heild,
b. innan aldursbila?
2. Hvernig skiptast þau samtals eftir flokkum (t.d. í heitum pottum, sundlaugum o.s.frv.)?
3. Hversu mörg barnanna þurfti að leggja inn á sjúkrahús og hve lengi samtals?
4. Hversu mörg þeirra eru talin hafa hlotið varanleg meiðsl eða örkuml?
5. Hvernig er tíðni drukknunarslysa íslenskra barna á fyrrgreindum aldursbilum og eftir kynjum í samanburði við aðrar þjóðir á Norðurlöndum, t.d. Norðmenn eða Svía?
Óskað er eftir að í svari við þessum lið verði einnig greint frá slysum þar sem lá við drukknun (svokölluð nærdrukknun).
6. Vinnuslys.
1. Hvernig er hagað skráningu vinnuslysa hjá börnum til 18 ára aldurs?
2. Hvernig skiptast vinnuslys fram að þeim aldri eftir tegund vinnu?
3. Hvernig skiptast þau eftir áverkum?
4. Hvernig skiptast þau eftir aldri?
5. Hvernig skiptast þau eftir kynjum?
6. Hvernig eru samsvarandi upplýsingar frá hinum Norðurlandaþjóðunum?
7. Hættulegar vörur.
Óskað er eftir upplýsingum um slys á fyrrgreindum aldursbilum, og eftir kynjum, vegna hættulegra vara, svo sem gluggabúnaðar (t.d. stormjárns), raftækja o.s.frv.
8. Önnur slys.
Óskað er eftir upplýsingum um slys á fyrrgreindum aldursbilum, og eftir kynjum, sem falla utan þeirra slysaflokka sem reifaðir eru að framan, t.d. við húsgrunna, á byggingarsvæðum o.s.frv.
9. Dauðsföll.
1. Hve mörg dauðsföll urðu vegna slysa barna upp að 18 ára aldri á tímabilinu, hvers konar slys leiddu til þeirra og hvernig skiptust þau eftir fyrrgreindum aldursflokkum og kynjum?
2. Hvernig eru samsvarandi upplýsingar frá hinum Norðurlandaþjóðunum?
10. Aðgerðir stjórnvalda.
Til hvaða aðgerða hyggjast stjórnvöld grípa til að draga úr slysatíðni barna?
11. Fræðsla.
Hvaða fræðsla hefur af hálfu stjórnvalda verið í gangi síðustu ár sem miðar að því að fækka barnaslysum?