Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 757 – 432. mál.



Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um heimilisofbeldi.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hvað líður störfum þeirra þriggja nefnda sem skipaðar voru í kjölfar skýrslu dómsmálaráðherra um heimilisofbeldi vorið 1997? Hvenær má vænta niðurstaðna af starfi þeirra?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra fylgja eftir niðurstöðum nefndar Evrópuráðsins um heimilisofbeldi sem birtar voru á síðasta ári, þannig að tillögur hennar nýtist og komist í fram kvæmd hér á landi?