Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 758 – 433. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um ólympíska hnefaleika.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
1. Hvað líður athugun á máli því sem Alþingi vísaði til ríkisstjórnarinnar 23. febrúar 1995 varðandi keppnisreglur, slysatíðni miðað við aðrar ólympískar íþróttagreinar og með hvaða skilyrðum ólympískir hnefaleikar eru leyfðir erlendis?
2. Telur ráðherra að bann við sýningum á hnefaleikum nái til sýninga í sjónvarpi, í tölvu eða á Internetinu og ef svo er, hvernig hyggst ráðherra framfylgja banninu?