Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 759 – 370. mál.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn
Rannveigar Guðmundsdóttur
um framkvæmd þingsályktunar um fræðslu í fjármálaumsýslu í skólum.
1.
Hefur verið lokið
gerð námsefnis um almenna fjármálaumsýslu fyrir efstu bekki grunnskólans og framhaldsskólann?
Grunnskólinn: Námsgagnastofnun sér nemendum í skyldunámi fyrir námsgögnum. Menntamálaráðuneytið leitaði upplýsinga hjá stofnuninni um stöðu námsefnis í fjármálaum
sýslu en í framhaldi af þingsályktuninni var áætlað að nýtt námsefni kæmi út 1995. Í bréfi Námsgagnastofnunar, dags. 27. janúar 1998, kemur fram að námsefnið, sem hafði vinnutitil
inn „Fjármál mín og framtíð“, hafi reynst of þungt fyrir grunnskólanemendur og því var út
gáfu þess frestað árið 1995. Í ljósi þess að endurskoðun aðalnámskrár stendur yfir hefur Námsgagnastofnun ekki aðhafst frekar í málinu.
Framhaldsskólinn: Á fjárlögum hefur á undanförnum árum verið fjárveiting til að styrkja námsefnisgerð á framhaldsskólastigi. Fjárveitingin dugir hvergi til að anna eftirspurn og verður því að hafna fjölda umsókna ár hvert. Á undanförnum árum hafa verið veittir styrkir til námsefnisgerðar í viðskipta- og hagfræðigreinum sem snerta ýmsa þætti fjármálaumsýslu, en ekki er um að ræða sérstakt námsefni um almenna fjármálaumsýslu. Ekki hvílir lagaleg skylda á ríkinu vegna námsefnis í framhaldsskólum.
2.
Hefur verið samið námsefni um almenna fjármálaumsýslu fyrir yngri bekki grunnskólans?
Ekki hefur verið samið sérstakt námsefni fyrir yngri bekki grunnskóla. Fræðsla um fjár
mál kemur fram í námsefni í ýmsum námsgreinum, svo sem stærðfræði, samfélagsfræði og heimilisfræði.
3.
Hefur kennsla í fjármálaumsýslu í samræmi við þingsályktun frá 12. mars 1991 verið hafin í grunnskólum eða framhaldsskólum? Í hvaða bekkjum og í hvaða áföngum?
Grunnskólinn: Fjármálafræðsla hefur ekki verið skilgreind í aðalnámskrá grunnskóla sem sérstök námsgrein. Í gildandi aðalnámskrá sem gefin var út árið 1989 er að finna mark
mið á þessu sviði sem grunnskólum er gert að uppfylla. Markmiðin eru einkum felld inn í stærðfræði, samfélagsfræði og heimilisfræði.
Nefnd um mótun menntastefnu skilaði tillögum sínum í júní 1994. Þar er m.a. að finna til
lögur um að útvíkka námsgreinina heimilisfræði og fella inn í hana námsþætti eins og „und
irstöðuatriði fjárhagslegs sjálfstæðis og fjárhagslegrar ábyrgðar, m.a. gerð atvinnuumsókna og skattskýrslna, notkun ávísanahefta og greiðslukorta“. Við endurskoðun aðalnámskrár grunn- og framhaldsskóla sem nú stendur yfir er hins vegar gert ráð fyrir að fjármálafræðsla falli undir nýja námsgrein í grunnskólum sem gengur undir vinnuheitinu „Lífsleikni“. Til
gangur þessarar nýju skyldunámsgreinar er að búa nemendur undir lífið með því að fjalla um ýmsa námsþætti sem ekki hafa þótt dregnir nógu skýrum línum. Dæmi um slíka námsþætti er fjármálafræðsla sem í nýrri aðalnámskrá fær mun markvissari umfjöllun en áður. Áætlað er að „Lífsleikni“ verði sjálfstæð skyldunámsgrein frá og með 4. bekk og upp í 10. bekk og verði kennd að jafnaði eina stund á viku.
Framhaldsskólinn: Fjármálaumsýsla er ekki enn skyldunám í framhaldsskólum. Nú er fjármálaumsýsla kennd á ýmsum námsbrautum framhaldsskólans. Má þar nefna verslunar
brautir og hagfræðibrautir þar sem fjallað er um bókfærslu, skattarétt, rekstrarhagfræði og þjóðhagfræði. Á félagsfræðibrautum taka margir nemendur námsáfanga þar sem vikið er að fjármálaumsýslu. Í flestum framhaldsskólum er kenndur samskiptaáfangi þar sem fjallað er um fjármál einstaklinga.
Í álitsgerð nefndar um mótun menntastefnu frá júní 1994 er lagt til að svokallaður ratvísi
kjarni verði á öllum námsbrautum framhaldsskólans. Eins og nefnt er hér að framan varðandi grunnskólann stendur nú yfir endurskoðun aðalnámskrár fyrir grunn- og framhaldsskóla. Þar er gert ráð fyrir að ný námsgrein, „lífsleikni“ (í stað ratvísi), verði í brautarkjarna á öllum námsbrautum. Tilgangurinn með kennslu í þessari grein er að stuðla að alhliða þroska nem
enda og auka færni þeirra í að takast á við síbreytilegt og flókið samfélag. Á meðal náms
þátta verða fjármálafræðsla, fjölskyldufræðsla og neytendafræðsla. Stefnt er að því að allir nemendur framhaldsskóla taki 6 einingar í „lífsleikni“.
4.
Hefur reynsla af tilraun, sem styrkt var af menntamálaráðuneytinu, með kennslu í grunnskólanum á Dalvík á svokallaðri sjálfsmennskubraut verið nýtt við gerð náms
efnisins eða við kennslufyrirkomulag í skólum?
Frumkvæði að svokallaðri sjálfsmennskubraut kom frá Dalvíkurskóla. Hugmyndin var að búa nemendur undir að flytja að heiman og standa á eigin fótum. Skólinn fékk styrk úr Þró
unarsjóði grunnskóla til að útfæra hugmyndina. Verkefnið tók til 10. bekkjar og í kennslunni var m.a. fjallað um skipulag eigin fjármála, fjárhagsáætlanir, eigið skattframtal, launamál, viðskipti, mannleg samskipti og mál sem snerta fjölskyldu og heimilishald almennt. Það var mat skólans að vel hefði tekist til og nemendur hefðu haft gagn af þeim undirbúningi sem veittur var á svokallaðri sjálfsmennskubraut. Ekki varð til sérstakt námsefni af þessu tilefni. Ráðuneytið hefur komið vitneskju um tilraunina á framfæri við alla grunnskóla en ekki hefur verið gerð úttekt á því að hvaða leyti aðrir skólar hafa tekið mið af þessu fordæmi á Dalvík.