Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 780 – 375. mál.



Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um eftirlit með áfengissölu.

     1.      Hvað hafa mörg innflutningsleyfi á áfengi verið gefin út frá 1. desember 1995?
    Frá 1. desember 1995 hafa verið gefin út 78 heildsöluleyfi sem ná til innflutnings og heildsölu áfengis. Auk þess hefur átta veitingastöðum verið veitt leyfi til innflutnings á áfengi vegna eigin veitingasölu.

     2.      Hvernig er eftirliti með sölu áfengis til veitingahúsa háttað?
    Frá því á miðju ári 1996 hefur starfsmaður hjá áfengisvarnaráði starfað sem eftirlitsmaður með áfengisdreifingu innan lands. Honum er ætlað að hafa samráð við viðkomandi lögreglu stjóra, ríkistollstjóra og ríkisskattstjóra í störfum sínum. Helstu verkefni eru sem hér segir:
     a.      Eftirlit með vínveitingahúsum í samráði við lögreglustjóra og eftirlitsmenn áfengishúsa. Hér undir fellur meðal annars eftirlit með því að ekki sé til sölu annað áfengi en það sem keypt er af aðilum með tilskilin leyfi og eftirlit með því að haldið sé bókhald yfir kaup og sölu á öllu áfengi.
     b.      Eftirlit með áfengisdreifingu innflytjenda og heildsala. Undir þetta fellur meðal annars eftirlit með því að í fórum innflytjenda og heildsala og í dreifingu á þeirra vegum sé ekki annað áfengi en þeir hafa flutt inn samkvæmt tilskildum leyfum eða keypt innan lands af aðilum sem hafa framleiðslu- eða innflutningsleyfi, svo og að allt áfengi sem flutt hefur verið inn eða keypt innan lands komi fram í sölu til aðila með smásöluleyfi eða sé í birgðum.
     c.      Eftirlit með áfengisdreifingu innlendra framleiðenda. Hér er meðal annars um að ræða eftirlit með að allt framleitt áfengi komi fram í sölu til aðila með smásöluleyfi, í útflutn ingi eða í birgðum.
             Eftirlitsmaðurinn hefur í starfi sínu haft eftirlit með sölu heildsala og framleiðenda á áfengi til veitingahúsa og leiðbeint þeim um framkvæmdaratriði. Þegar í ljós kemur við eftirlit að settum reglum hefur ekki verið fylgt sendir hann kæru til viðkomandi lög reglustjóra og afrit til fjármálaráðuneytisins .
    Auk þessa eftirlits fól fjármálaráðuneytið embætti ríkisskattstjóra með bréfi dags.15. apríl 1997 að annast úttekt á því hvort starfsemi aðila, sem fengið höfðu leyfi til innflutnings og dreifingar á áfengi, væri í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 585/1995, um framleiðslu, heildsölu og innflutning áfengis í atvinnuskyni. Sérstakir eftirlitsmenn ríkisskattstjóra, sem hafa haft eftirlit með áfengisframleiðslu innan lands, hafa sinnt þessu verkefni á vegum embættisins.

     3.      Í 13. gr. reglugerðar um áfengisgjald er kveðið á um að skylt sé að halda birgðabókhald þannig að fyrirvaralaust megi bera saman niðurstöðu birgðabókhalds og magn vörubirgða. Hversu oft hefur þessi samanburður farið fram hjá hverjum aðila?
    Sérstakir eftirlitsmenn ríkisskattstjóra annast eftirlit með starfsemi innlendra framleiðenda. Hér er fyrst og fremst um að ræða skatteftirlit sem þó nýtist jafnframt við almennt eftirlit með áfengisdreifingu. Hjá þessum aðilum er samanburður á birgðabókhaldi og magni vörubirgða gerður nokkrum sinnum í mánuði.
    Hvað varðar aðra aðila, þ.e. þá sem hafa innflutnings- eða heildsöluleyfi, þá mun slíkur samanburður ekki hafa verið gerður, heldur hefur eftirlit fyrst og fremst beinst að öðrum þáttum, sbr. 4. og 5. lið.

     4.      Hversu oft er athugað hvort áfengisheildsalar selji einungis þeim aðilum sem taldir eru upp í 5. gr. reglugerðar um framleiðslu, heildsölu og innflutning á áfengi í atvinnuskyni?
    Til svars við þessu má að mestu vísa til 2. liðar hér að framan. Eftirlitsmaður áfengisvarnaráðs annast reglubundið slíkt eftirlit sem hér um ræðir. Hann hefur sent allmargar kær ur til lögreglustjóra um að áfengi hafi verið selt öðrum en þeim sem heimilt er að selja til. Er þar fyrst og fremst um að ræða sölu innflytjenda og heildsala á áfengi til aðila sem hafa fengið svokölluð tækifærisleyfi hjá lögreglustjóra.
    Eftirlitsmenn ríkisskattstjóra, sem greint er frá í 2. lið hér að framan, hafa einnig sinnt slíku eftirliti. Samkvæmt upplýsingum embættisins var farið til tíu leyfishafa á árinu 1997 og þetta atriði kannað. Embættið stefnir að því að efla þennan eftirlitsþátt frekar.

     5.      Hversu oft er athugað hvort 9. gr. sömu reglugerðar um bókhald og skráningu viðskipta sé fylgt?
    Hvað varðar innlenda framleiðendur áfengis þá er eftirlit með framleiðsluskýrslum og birgðabókhaldi hluti af starfi eftirlitsmanna ríkisskattstjóra, sbr. 2. lið hér að framan. Að því er varðar innflytjendur og heildsala þá hafa verkefni eftirlitsmanna áfengisvarnaráðs og ríkisskattstjóra hins vegar fyrst og fremst lotið að því að kanna, m.a. með athugun á bók haldsgögnum, til hverra áfengi hefur verið selt, en ekki sérstaklega hvort ákvæðum 9. gr. reglugerðarinnar um um bókhald og skráningu viðskipta hafi verið fylgt.

     6.      Hvernig hefur 10. gr. sömu reglugerðar þar sem kveðið er á um að áfengisheildsalar skuli senda skýrslu um áfengisviðskipti sín ársfjórðungslega til Hagstofu Íslands verið framfylgt frá árinu 1995? Þessi skýrsla á að innihalda m.a. upplýsingar um innflutn ing, sölu, tegundir, magn í lítrum og hlutfall vínanda.

    Eins og fram kemur í 10. gr. reglugerðarinnar ber að skila upplýsingunum til Hagstofu Íslands. Hagstofan hefur sent út eyðublöð til áfengisheildsala til útfyllingar um þessi atriði. Í þeim tilvikum er svör berast ekki fylgir Hagstofan því eftir með ítrekunum. Upplýsingar fyrir árið 1996 hafa þannig skilað sér að fullu. Nokkuð vantar enn á að allar upplýsingar um árið 1997 hafi skilað sér, en Hagstofan hyggst ganga eftir því að þeim verði skilað.

    Að lokum skal tekið fram í tilefni af fyrirspurninni að um nokkurt skeið hefur verið talið að nauðsyn bæri til að efla og skipuleggja betur eftirlit með dreifingu á áfengi innan lands. Ekki er síst talin þörf á að styrkja þann lagagrundvöll sem eftirlit byggist á og færa það undir lögregluyfirvöld.
    Í frumvarpi til nýrra áfengislaga og í frumvarpi til laga um breyting á lögreglulögum, sem dómsmálaráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn, er kveðið á um þessi atriði. Lagt er til að sérstök áfengiseftirlitsdeild verði starfrækt hjá ríkislögreglustjóra og annist hún eftirlit með meðferð áfengis. Gert er ráð fyrir að embættið gefi fyrirmæli til einstakra lögregluembætta og setji þeim starfsreglur um áfengiseftirlit, auk þess að skipuleggja sérstök átaksverkefni í samráði við einstök lögregluembætti og eftir atvikum skatt- og tollyfirvöld. Þá er gert ráð fyrir að embættið haldi skrá yfir birgðageymslur, áfengisveitingahús og áfengisútsölustaði, svo og skrá yfir leyfishafa til innflutnings, framleiðslu, sölu og veitinga áfengis. Einnig er embætti ríkislögreglustjóra ætlað að veita leyfi til framleiðslu, innflutnings og heildsölu áfengis.
    Gert er ráð fyrir því að lögreglustjórar sinni hver á sínum stað eftirliti með dreifingu áfengis innan lands í samræmi við ákvarðanir ríkislögreglustjóra. Þá er gert ráð fyrir því að dómsmálaráðherra setji nánari reglur um færslu framleiðslu-, birgða- og sölubókhalds.