Ferill 363. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 783 – 363. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um nauðasamninga sam
Leitað var upplýsinga um málið hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga.
1. Hversu margir einstaklingar hafa óskað eftir heimild til samninga um niðurfellingu á meðlagsskuldum að hluta eða að öllu leyti eða lækkun á mánaðarlegum greiðslum á grundvelli laga nr. 71/1996, um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfé
Alls hafa 560 einstaklingar leitað eftir samningum á grundvelli laga nr. 71/1996 og reglu
2. Hversu margar umsóknir hafa verið samþykktar á framangreindu tímabili?
Alls 355 umsóknir hafa verið samþykktar, 160 umsóknum hefur verið synjað og 45 um
3. Hvaða félagslegir erfiðleikar umsækjenda hafa haft áhrif á samþykkt framangreindra umsókna? Svar óskast sundurliðað eftir samþykktum umsóknum.
Þarna tvinnast gjarnan saman félagslegir og fjárhagslegir erfiðleikar og oft eru fleiri en ein ástæða fyrir því að umsóknir eru samþykktar.
| Umsóknir | Ástæður samþykktar |
| 158 | lágar tekjur |
| 78 | skert starfsorka |
| 47 | barnamergð |
| 48 | mikil greiðslubyrði |
| 24 | aðrar ástæður, t.d. frestun á greiðslu skuldar meðan á námi stendur |