Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 784 – 454. mál.
Frumvarp til laga
um stöðvun verkfalla á fiskiskipaflotanum.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
1. gr.
Sjávarútvegsráðherra skal skipa nefnd þriggja manna. Nefndin skal kanna verðmyndun á fiski og þá þætti sem áhrif hafa á hana. Skal hún gera tillögur er beinist einkum að því að koma í veg fyrir að viðskipti með sjávarafla milli tengdra aðila og viðskipti með aflaheimildir hafi óeðlileg áhrif á skiptakjör sjómanna og undirbúa löggjöf í þeim efnum. Nefndin skal skila tillögum sínum sem fyrst og eigi síðar en 10. mars 1998.
2. gr.
Allir síðastgildandi kjarasamningar fiskimanna í aðildarfélögum Sjómannasambands Íslands, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og verkalýðsfélögum innan Alþýðusam
bands Vestfjarða, svo og Matsveinafélagi Íslands, Vélstjórafélagi Íslands, Vélstjórafélagi Ísa
fjarðar, Vélstjórafélagi Suðurnesja og Vélstjórafélagi Vestmannaeyja, skulu gilda frá gildis
töku laga þessara til 30. júní 1998, nema aðilar semji um annað. Þó skal hækka kauptryggingu og aðra kaupliði, sem og hlífðarfatapeninga, um 11,4% við gildistöku laga þessara. Jafnframt skal samtala eingreiðslu dánarbóta sjómanna skv. a- og b-lið 1. tölul. 2. mgr. 172. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, þegar um er að ræða eftirlifandi maka og/eða börn innan 18 ára aldurs, verða 3.228.503 kr. frá 1. mars 1998 og er sú tala viðmiðunarfjárhæð miðað við 1. janúar 1998 við endurskoðun fjárhæða skv. 4. mgr. sömu greinar.
3. gr.
Vinnustöðvanir aðila sem um ræðir í 2. gr., svo og verkföll og verkbönn og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða, eru óheimilar.
4. gr.
Með brot gegn lögum þessum skal fara að hætti opinberra mála og varða þau sektum ef ekki liggja við þyngri refsingar samkvæmt öðrum lögum.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Hinn 3. febrúar sl. hófst verkfall á fiskiskipaflotanum en samningar sjómanna og útvegs
manna höfðu verið lausir frá því í ársbyrjun 1997 eða í rúmlega 13 mánuði. Er þetta í þriðja sinn á fjórum árum sem kjaradeilur sjómanna og útvegsmanna hafa leitt til þess að stærsti hluti fiskiskipaflotans stöðvast. Fyrri deilur hafa, líkt og deilan nú, fyrst og fremst snúist um ákvörðun fiskverðs í viðskiptum utan fiskmarkaða og framsal aflamarks milli skipa sem sjó
menn telja að hafi í sumum tilvikum óeðlileg áhrif á skiptakjör.
Síðustu deilum, þar sem verkfall hófst 25. maí 1995, lauk með því að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu. Jafnframt óskuðu samtök útvegsmanna og sjómanna eftir því við sjávarútvegsráðherra að hann beitti sér fyrir lagasetningu á Alþingi ef kjarasamningar tækjust á grundvelli miðlunartillögunnar. Var miðlunartillagan samþykkt og í framhaldi af því lagði sjávarútvegsráðherra fram frumvarp til laga um úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna sem öðluðust gildi þann 21. júní 1995.
Yfirstandandi kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna var skotið til ríkissáttasemjara snemma á síðasta ári eftir að aðilar höfðu, án árangurs, reynt að ná samkomulagi. Ríkissátta
semjari hefur haldið fjölda funda með deiluaðilum. Þær viðræður hafa ekki orðið til þess að þoka málum í átt til samkomulags.
Í janúarmánuði átti sjávarútvegsráðherra fundi með fulltrúum allra deiluaðila þar sem farið var yfir stöðu mála. Í þessum viðræðum kom í ljós að ekkert hafði þokast í átt til samkomulags á því rúma ári sem kjarasamningar höfðu verið lausir og í raun hafði lítil efnisleg umræða farið fram á milli aðila um sjálf deilumálin. Til að freista þess að koma skriði á samn
ingaviðræður beitti sjávarútvegsráðherra sér fyrir óformlegum viðræðum á milli deiluaðila. Þessar viðræður hófust upp úr miðjum janúar en til þeirra var stofnað í nánu samráði við ríkissáttasemjara og deiluaðila. Sjávarútvegsráðherra fékk Ásmund Stefánsson framkvæmda
stjóra til að stýra þessum viðræðum. Í viðræðunum var farið ítarlega yfir ýmsar hugmyndir til lausnar deilunni sem samt skiluðu ekki þeim árangri sem vonast var eftir.
Föstudaginn 6. febrúar voru á sáttafundi gerðar ýtrustu tilraunir til sátta og reifaðar hug
myndir í von um að þær gætu orðið umræðugrundvöllur að lausn á yfirstandandi kjaradeilu. Tillögurnar lutu að myndun lágmarksverðs og framsalstakmörkunum og voru ræddar í röðum deiluaðila fram á sunnudaginn 8. febrúar er nýr sáttafundur var boðaður. Aðilar höfðu hver um sig lagt mat á þær hugmyndir sem uppi voru og tjáð sig á sáttafundinum um þær með þeim hætti að ljóst er að ekki er samstaða um áframhaldandi viðræður á þeim grunni. Ekki komu fram á fundinum aðrar hugmyndir að viðræðugrundvelli sem aðilar geta sameinast um. Sá ríkissáttasemjari því ekki tilefni til að tímasetja næsta fund.
Að morgni 9. febrúar áttu fjórir ráðherrar ríkisstjórnar fundi með ríkissáttasemjara og deiluaðilum og var þar staðfest að mikið bar enn á milli.
Ljóst er að hver dagur í febrúar og mars er gríðarlega mikilvægur varðandi veiðar og vinnslu sjávarafurða. Aðeins á þessum tíma er hægt að veiða loðnu til frystingar og hrogna
töku fyrir Asíumarkað. Verði ekki hægt að veiða og vinna loðnu fyrir þessa markaði mun það ekki einungis hafa í för með sér mikið efnahagslegt tap nú heldur mun það geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir stöðu íslenskra loðnuafurða á þessum mikilvæga markaði í framtíðinni.
Þjóðhagsstofnun hefur lagt mat á efnahagsleg áhrif þess á afkomu þjóðarbúsins ef eftir
stöðvar loðnukvótans, sem nú eru um 440.000 lestir, falla óveiddar niður. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að ef eftirstöðvar loðnukvótans veiðast ekki í febrúar og mars mun hann ekki veiðast þar sem loðnan drepst að lokinni hrygningu.
Samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar hefði verkfall sem stæði fram yfir lok loðnuvertíðar verulegar efnahagslegar afleiðingar fyrir þjóðarbúið. Stofnunin telur að verðmæti vöru
útflutnings loðnuafurða gæti minnkað um 6–7 milljarða kr. frá því sem gert er ráð fyrir í þjóð
hagsáætlun eða um 6–7% af allri útflutningsframleiðslu sjávarafurða. Það hefði þau áhrif að hagvöxtur minnkaði um 1% frá því sem áætlað hafði verið. Hreint tekjutap þjóðarbúsins gæti orðið 4–5 milljarðar kr. Þetta jafngildir 1,5% af ráðstöfunartekjum heimilanna. Verkfall sem hefði t.d. staðið í einn mánuð hefði að mati Þjóðhagsstofnunar ekki sömu áhrif á botnfiskveiðar og vinnslu. Það byggist á því mati að afkastageta í þessum greinum sé það mikil að vinnustöðvun í nokkrar vikur mundi ekki koma í veg fyrir að hægt yrði að veiða og vinna þann fisk sem heimildir eru til að veiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Þó er ljóst að aukinn kostnaður mundi fylgja þeirri truflun sem yrði á starfsemi þeirra fyrirtækja sem stunda veiðar og vinnslu á botnfiski.
Ljóst er að hér er um háar fjárhæðir að ræða fyrir íslenskt þjóðarbú. Það er líka ljóst að almenn stöðvun veiða og vinnslu um lengri tíma hefði mun meiri og alvarlegri afleiðingar fyrir einstaklinga sem starfa við fiskvinnslu og fyrirtæki og bæjarfélög sem byggja á sjávar
útvegi. Að öllu óbreyttu er fyrirsjáanlegt að innan fárra daga stöðvist vinnsla á fiski að mestu og fjöldi fiskvinnslufólks missi atvinnuna. Fyrirtæki í sjávarútvegi og þjónustufyrirtæki þeirra munu því tapa miklum fjármunum. Sum þeirra gætu tæplega þolað langt verkfall og jafnvel orðið gjaldþrota með tilheyrandi röskun. Þá má búast við að langt verkfall skaðaði verulega markaði fyrir íslenskar sjávarafurðir því að erlendir kaupendur þyrftu að snúa sér annað með innkaup sín. Það yrði því bæði erfitt og kostnaðarsamt fyrir íslenska útflytjendur sjávarafurða að ná aftur fyrri viðskiptum.
Af framansögðu er ljóst að hér er um mikla almannahagsmuni að tefla. Með frumvarpi þessu er því lagt til að yfirstandandi vinnustöðvunum á fiskiskipaflotanum verði aflétt og gildandi kjarasamningar milli sjómanna og útvegsmanna framlengdir frá gildistöku þessara laga til 30. júní nk. Jafnframt er gerð tillaga um að sjávarútvegsráðherra skipi nefnd þriggja manna er móti tillögur er miði að því koma í veg fyrir að viðskipti með sjávarafla milli tengdra aðila og viðskipti með aflaheimildir hafi óeðlileg áhrif á skiptakjör. Jafnframt er nefndinni falið að undirbúa lagafrumvarp um þetta efni.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Verðmyndun á fiski og áhrif hennar á skiptakjör hefur verið helsta ágreiningsefni útvegs
manna og sjómanna í yfirstandandi deilu. Hafa forustumenn sjómanna einkum talið þörf á að koma í veg fyrir að viðskipti með sjávarafla milli tengdra aðila og viðskipti með aflaheimildir hafi óeðlileg áhrif á skiptakjör. Sáttatilraunir síðustu vikna hafa fyrst og fremst beinst að því að finna lausn í þessu efni sem væri viðsættanleg fyrir jafnt sjómenn sem útvegsmenn. Eins og rakið er í almennum athugasemdum hafa þær tilraunir ekki borið árangur. Þar sem deilu
aðilum hefur mistekist að finna á þessu sameiginlega lausn sýnist óhjákvæmilegt að lög
gjafinn höggvi á þennan hnút. Til undirbúnings því er með 1. gr. lagt til að sjávarútvegsráð
herra skipi nefnd þriggja manna er hafi það hlutverk að kanna verðmyndun á sjávarafla og þá þætti sem hafa áhrif á hana. Skal nefndin móta tillögur er beinist að því að koma í veg fyrir að viðskipti með sjávarafla milli tengdra aðila og viðskipti með aflaheimildir hafi óeðlileg áhrif á skiptakjör. Loks skal nefndin undirbúa löggjöf í þessum efnum. Er nefndinni ætlaður skammur tími til starfsins og skal hún skila tillögum sínum eigi síðar en 10. mars. Er að því stefnt að Alþingi gefist tími til að fjalla um málið og lögfesta nýja lagaumgjörð í þessum efnum fyrir þinglok í vor.
Um 2. gr.
Með þessari grein er lagt til að síðastgildandi kjarasamningar þeirra aðila sem tilgreindir eru gildi frá gildistöku laganna til 30. júní 1998. Gildir þetta fyrir öll félögin hvort sem þau samþykktu verkfall eða ekki. Aðilar geta þó að sjálfsögðu samið um annað og kemur þá slíkur samningur í stað þeirrar lögbundnu framlengingar síðastgildandi kjarasamninga sem gert er ráð fyrir í þessari grein.
Í greininni er loks gert ráð fyrir að kauptrygging hækki um 11,4% við gildistöku laga þessara og frá sama tíma verði sama hækkun á kaupliðum, sem og á hlífðarfatapeningum. Frá 1. mars 1998 skal samtala eingreiðslu dánarbóta sjómanna skv. a- og b-lið 1. tölul. 2. mgr. 172. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, þegar um er að ræða eftirlifandi maka og/eða börn innan 18 ára aldurs verða 3.228.503 kr. Um hækkun kauptryggingar, kaupliða, hlífðarfatapeninga og eingreiðslu dánarbóta hafði náðst samkomulag í viðræðum aðila.
Um 3. gr.
Í þessari grein er kveðið á um friðarskyldu milli deiluaðila frá og með þeim tíma er frumvarpið fær lagagildi til 30. júní nk. Er með henni ætlað að draga úr þeim alvarlegu afleiðingum sem hlytust af stöðvun fiskiskipaflotans eins og gert er grein fyrir í almennum athugasemdum. Vinnustöðvun, þar með talin verkföll, verkbönn og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en frumvarpið gerir ráð fyrir, er samkvæmt því óheimil. Gildir í því sambandi einu hvort aðgerðir hafa hafist áður en frumvarpið fær lagagildi eður ei eða hvort þeir sem grípa til aðgerðanna eru aðilar að yfirstandandi kjaradeilu eða ekki. Það er rétt að árétta að samkvæmt því sem segir í 2. gr. er aðilum heimilt að semja um aðra skipan kjaramála, en þeim er óheimilt að beita framangreindum úrræðum fyrr en eftir 30. júní 1998.
Um 4. og 5. gr.
Greinarnar þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneytið,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um
stöðvun verkfalla á fiskiskipaflotanum.
Með frumvarpi þessu er lagt til að bundinn verði endi á kjaradeilu sjómanna og útgerðar
manna. Í 1. gr. er gert ráð fyrir að skipuð verði þriggja manna nefnd til að kanna verðmyndun á fiski og þá þætti sem hafa áhrif á hana. Talið er að kostnaður við þá könnun verði óverulegur þannig að kostnaður ríkissjóðs af samþykkt frumvarpsins verði lítill sem enginn.