Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 785 – 455. mál.



Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um umfjöllun um skólastarf.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hvað hefur verið gert til að auka umræðu um skólastarf og stöðu einstakra grunnskóla eða skólasvæða eftir að farið er að birta niðurstöður samræmdra prófa?
     2.      Hvaða leiðir telur ráðherra færar til að auka umfjöllun um skólastarf í kjölfar birtingar á niðurstöðum samræmdra prófa svo að auknar upplýsingar leiði til þeirra umbóta í skólastarfi sem vænst er?