Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 791 – 461. mál.



Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um bifreiðakaupastyrki fyrir hreyfihamlaða.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu mörgum umsækjendum um styrk til bifreiðakaupa hefur verið synjað um styrkinn á ári frá því að styrkjunum var fækkað og reglur þrengdar árið 1996?
     2.      Hafa margir hreyfihamlaðir bundnir hjólastól eða með gervilimi, sem uppfylla skilyrðin sem sett eru fyrir hærri styrknum, fengið synjun eða lægri styrkinn vegna þess hve fáir hærri styrkirnir eru?