Ferill 364. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 797 – 364. mál.



Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur um greiðslu bóta til leigubíl stjóra.

1.      Hversu margir leigubílstjórar fengu greiddar bætur frá ríkinu þegar þeir misstu atvinnuleyfið við gildistöku laga nr. 77/1989, um leigubifreiðar?
    Enginn leigubílstjóri hefur fengið greiddar bætur frá ríkinu við missi atvinnuleyfis vegna gildistöku laga nr. 77/1989, um leigubifreiðar.
    Með lögum um leigubifreiðar, nr. 77/1989, sem tóku gildi 1. júlí 1989, var í fyrsta sinn kveðið á um í lögum að atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs félli niður við ákveðinn hámarksaldur leyfishafa, en umræða hafði þá átt sér stað um það hvort og við hvaða aldurs mark atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs ætti að falla niður. Það fyrirkomulag sem nú ríkir og byggist á útgáfu atvinnuleyfa hefur staðið frá árinu 1955 og er fjöldi atvinnuleyfa á höfuðborgarsvæðinu takmarkaður. Gert er ráð fyrir að hver einstaklingur hafi eitt atvinnu leyfi og aki sjálfur eigin leigubifreið. Segja má að hver og einn leyfishafi hafi einhvers konar einkaleyfi til að bjóða upp á þessa þjónustu. Samhliða þessu einkaleyfi, eða starfsvernd, hefur löggjafinn talið sér rétt og skylt að gæta einnig hagsmuna og réttar þeirra sem nota þjónustuna þannig að hún verði eftir sem áður góð og örugg. Almenningur á þá kröfu að þeir sem slíkt einkaleyfi hafa séu góðir, hæfir og fullfrískir ökumenn og geti þjónað viðskiptavin unum, t.d. borið ferðatöskur og annan farangur. Í ljósi þessa og fjölda kvartana á sínum tíma gerði ráðuneytið það að tillögu sinni að kveða á um 75 ára aldurshámark leyfishafa til leigu bifreiðaaksturs í frumvarpi til laga um leigubifreiðar, sem lagt var fram á Alþingi vorið 1989. Í meðferð frumvarpsins á Alþingi var hámarksaldurinn lækkaður í 71 ár.
    Einn leigubifreiðastjóri, sem gert var að leggja inn atvinnuleyfi sitt í samræmi við ákvæði laga um leigubifreiðar, nr. 77/1989, höfðaði mál á hendur samgönguráðherra og byggði á því að með því að svipta sig atvinnuleyfinu vegna aldurs á grundvelli laga og reglugerða um leigubifreiðar væri brotinn á honum réttur, sem honum bæri samkvæmt stjórnskipulegri jafn ræðisreglu. Hann taldi sig beittan ójafnræði eða misrétti sem fælist annars vegar í því að bif reiðastjórar sendi-, vöru- og langferðabifreiða væru ekki háðir sams konar ákvæðum um aldurshámark og hins vegar ekki heldur þeir bifreiðastjórar sem stunda leiguakstur á fólks bifreiðum á þeim svæðum þar sem fjöldi leigubifreiða til fólksflutninga hefur ekki verið tak markaður. Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm sinn í málinu 3. júní 1993. Í forsendum dómsins er staðfest það mat héraðsdómara að til grundvallar ákvæði 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/1989, um aldursmark bifreiðastjóra leigubifreiða til fólksflutninga, liggi almenn og hlutlæg sjónar mið og gætt hafi verið jafnræðis við setningu laganna þar sem þau ná til allra sem eins eru settir. Brytu lögin því ekki jafnræðisreglu íslensks stjórnskipunarréttar.
    Áður en lög um leigubifreiðar, nr. 77/1989, tóku gildi var kveðið á um brottfall atvinnu leyfis vegna aldurs í 16. gr. reglugerðar nr. 293/1985, um takmörkun leigubifreiða í Reykja vík, en skv. 19. gr. hennar var gildistöku ákvæðisins um aldurshámark frestað um þrjú ár frá gildistöku reglugerðarinnar og kom það fyrst til framkvæmda 1. júlí 1988. Þá áttu leyfishafar sem orðnir voru 75 ára að leggja inn atvinnuleyfi sín. Þrír leigubifreiðastjórar, sem gert var að leggja inn atvinnuleyfi sín í samræmi við þessa reglu, töldu ákvæðið ekki hafa lagaaðstoð og báru fram kvörtun við umboðsmann Alþingis. Hann komst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að fyrrnefnt ákvæði reglugerðar um hámarksaldur hafi ekki átt sér viðhlítandi lagastoð, þannig að því yrði beitt gagnvart leyfishöfum sem höfðu leyfi við gildistöku ákvæðisins. Jafnframt mæltist hann til þess að lög um leigubifreiðaakstur yrðu tekin til rækilegrar endur skoðunar í heild. Í framhaldi af niðurstöðu umboðsmanns Alþingis var hafist handa við heildarendurskoðun laga um leigubifreiðar. Frumvarp þess efnis var lagt fram í ársbyrjun 1989 og varð að lögum 1. júní sama ár, sem tóku gildi 1. júlí.
    Einn þeirra sem bar fram kvörtun við umboðsmann Alþingis höfðaði mál fyrir bæjarþingi Reykjavíkur á hendur umsjónarnefnd leigubifreiða, samgönguráðherra og fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs, til heimtu skaða- og miskabóta vegna innköllunar atvinnuleyfis sem leigu bifreiðastjóri vegna aldurs frá 1. júlí 1988 til 1. júlí 1989 áður en lög nr. 77/1989, tóku gildi. Í dómnum voru stefnanda dæmdar bætur að fjárhæð 30 þús. kr. þar sem fallist var á sjónar mið hans að skv. 69. gr. stjórnarskrárinnar yrði að koma fram heimild í lögum til að binda gildi atvinnuleyfa við aldurshámark eða ótvíræð heimild til þess að kveða á um það í reglu gerð að slíkum takmörkunum megi beita og hafi slíku ekki verið til að dreifa samkvæmt lög-um nr. 36/1970, um leigubifreiðar. Málinu var ekki áfrýjað af hálfu ríkissjóðs.

2.      Á hvaða forsendum voru bótagreiðslur ákveðnar?
    Eins og áður er komið fram voru engar bætur greiddar leigubílstjórum sem misstu atvinnu leyfi sitt vegna gildistöku laga nr. 77/1989, um leigubifreiðar. Hins vegar ákvað ráðuneytið með hliðsjón af áliti umboðsmanns Alþingis, dóms bæjarþings Reykjavíkur og að höfðu sam ráði við embætti ríkislögmanns að greiða skaðabætur til þeirra sem misstu atvinnuleyfi sín á tímabilinu frá 1. júlí 1988 til 1. júlí 1989 samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 293/1985, um brottfall atvinnuleyfis vegna aldurs, og byggðust þær á forsendum dómsins um bótaskylt tjón. Bótafjárhæðir til einstakra leigubílstjóra voru ákveðnar með sérstöku samkomulagi milli lögmanns þeirra og embættis ríkislögmanns.

3.      Hverjir fengu bætur og um hvaða upphæðir var að ræða í hverju tilviki?
    Alls átta leigubílstjórar fengu greiddar skaðabætur frá ríkinu við brottfall atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 293/1985, um aldursmark. Höfuðstóll bótafjárhæðanna var 30.000–180.922 kr., samtals að upphæð 795.446 kr.

4.      Hvaða heimildir voru til greiðslu þessara bóta?
    Sjá svar við 2. lið.