Ferill 474. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 807 – 474. mál.



Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um smíði á varðskipi.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



1.      Hafa stjórnvöld ákveðið að nýta þann möguleika að nýtt varðskip verði smíðað innan lands á þeim forsendum að um sé að ræða skip sem jafna megi við þau verkefni annarra þjóða sem ekki fara í opið útboð með rökum um hernaðarleynd?
2.      Ef stjórnvöld hafa ekki mótað þá stefnu, hver eru þá viðhorf ráðherra til þessa og hvaða veganesti fékk nýskipuð smíðanefnd í þessu efni?